Biblían 2007
|
| 1 |
| Þessu næst lét hann mig sjá Jósúa æðsta prest. Hann stóð frammi fyrir engli Drottins en á hægri hönd honum Satan til að flytja kæru sína gegn honum. |
| 2 |
| En Drottinn mælti til Satans: „Drottinn ávíti þig, ákærandi. Er þessi maður ekki sem brandur úr báli dreginn?“ |
| 3 |
| En Jósúa var í óhreinum klæðum þar sem hann stóð andspænis englinum. |
| 4 |
| Engillinn tók þá til máls og sagði við þá sem stóðu frammi fyrir honum: „Færið hann úr þessum óhreinu klæðum.“ Síðan sagði hann við Jósúa: „Sjá, ég nem burt sök þína og læt færa þig í skrúða.“ |
| 5 |
| Og hann sagði: „Látið hreina ennisspöng á höfuð hans.“ Þeir létu þá hreina ennisspöng á höfuð hans og færðu hann í skrúðann. Og engill Drottins stóð hjá. |
| 6 |
| Og engill Drottins ávarpaði Jósúa með þessum orðum: |
| 7 |
| Svo segir Drottinn allsherjar: Ef þú gengur á mínum vegum og heldur boðorð mín skaltu einnig stjórna húsi mínu og gæta forgarða þess og ég heimila þér að samneyta þessum þjónum mínum. |
| 8 |
| Hlýddu á, Jósúa æðsti prestur, þú og félagar þínir, sem sitja andspænis þér, þeir eru tákn þess að ég mun láta Sprota, þjón minn, koma |
| 9 |
| því að hér er steinninn sem ég set fram fyrir Jósúa, einn steinn og á honum sjö augu. Ég gref á hann letrið, segir Drottinn allsherjar, og á einum degi nem ég burt sök þessa lands. |
| 10 |
| Á þeim degi, segir Drottinn allsherjar, mun hver maður bjóða granna sínum undir vínvið sinn og fíkjutré. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/zechariah/003.mp3
14
3