Biblían 1981
|
| 1 |
| Því næst lét hann mig sjá Jósúa æðsta prest, þar sem hann stóð frammi fyrir engli Drottins og Satan honum til hægri handar til þess að ákæra hann. |
| 2 |
| En Drottinn mælti til Satans: “Drottinn ávíti þig, Satan! Drottinn, sem útvalið hefir Jerúsalem, ávíti þig! Er ekki þessi eins og brandur úr báli dreginn?” |
| 3 |
| Jósúa var í óhreinum klæðum, þar er hann stóð frammi fyrir englinum. |
| 4 |
| Þá tók engillinn til máls og mælti til þeirra, er stóðu frammi fyrir honum: “Færið hann úr hinum óhreinu klæðum!” Síðan sagði hann við hann: “Sjá, ég hefi burt numið misgjörð þína frá þér og læt nú færa þig í skrúðklæði.” |
| 5 |
| Enn fremur sagði hann: “Látið hreinan ennidúk um höfuð hans!” Þá létu þeir hreinan ennidúk um höfuð hans og færðu hann í klæðin, en engill Drottins stóð hjá. |
| 6 |
| Og engill Drottins vitnaði fyrir Jósúa og sagði: |
| 7 |
| “Svo segir Drottinn allsherjar: Ef þú gengur á mínum vegum og varðveitir boðorð mín, þá skalt þú og stjórna húsi mínu og gæta forgarða minna, og ég heimila þér að ganga meðal þessara þjóna minna.” |
| 8 |
| Heyr, Jósúa æðsti prestur, þú og félagar þínir, sem sitja frammi fyrir þér, eru fyrirboðar þess, að ég læt þjón minn Kvist koma. |
| 9 |
| Því sjá, steinninn, sem ég hefi lagt frammi fyrir Jósúa - sjö augu á einum steini - sjá, ég gref á hann letur hans - segir Drottinn allsherjar - og tek burt á einum degi misgjörð þessa lands. |
| 10 |
| Á þeim degi - segir Drottinn allsherjar - munuð þér bjóða hver öðrum inn undir víntré og fíkjutré. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/zechariah/003.mp3
14
3