Sjá, ég sendi sendiboða minn, hann á að ryðja mér braut. Drottinn, sem þið leitið, kemur skyndilega til musteris síns og boðberi sáttmálans, sem þið þráið, hann kemur, segir Drottinn hersveitanna.
Hann sest til að bræða silfrið og hreinsa það, hann hreinsar syni Leví, hann gerir þá sem hreint silfur og skíragull. Þá munu þeir færa Drottni fórnargjafir á réttan hátt.
Ég mun koma til ykkar og halda dómþing. Ég kem brátt og vitna gegn galdramönnum, hórkörlum og meinsærismönnum, gegn öllum sem halda launum fyrir daglaunamönnum, kúga ekkjur og munaðarleysingja og þjaka aðkomumenn og óttast mig ekki, segir Drottinn hersveitanna.
Allt frá dögum forfeðra ykkar hafið þið vikið frá lögum mínum, þið hélduð þau ekki. Snúið aftur til mín, þá sný ég aftur til ykkar, segir Drottinn hersveitanna. En þið spyrjið: „Hvernig getum við snúið aftur?“ Getur maðurinn prettað Guð? Samt svíkið þið mig.
Færið tíundina alla í forðabúrið svo að matföng séu til í húsi mínu. Reynið mig með þessu, segir Drottinn hersveitanna, og sjáið hvort ég lýk ekki upp flóðgáttum himins og helli yfir ykkur óþrjótandi blessun.
Þið segið: „Það er til einskis að þjóna Guði. Hvaða ávinning höfum við af að hlýða boðum hans og ganga í sorgarklæðum frammi fyrir Drottni hersveitanna?
Um þetta töluðu þeir hver við annan, sem óttuðust Drottin, og Drottinn hlýddi á með athygli. Frammi fyrir honum var skrifuð bók til að minna á alla sem óttast Drottin og virða nafn hans.
Þeir skulu verða mín eign, segir Drottinn hersveitanna, á þeim degi sem ég hefst handa. Ég mun vægja þeim eins og maður vægir syni sínum sem þjónar honum.
Sjá, dagurinn kemur, logandi sem eldstó. Þá verða allir hrokagikkir og óguðlegir að hálmi og dagurinn sem kemur mun kveikja í þeim, segir Drottinn hersveitanna, svo að hvorki verður eftir af þeim rót né grein.
En sól réttlætisins mun rísa yfir ykkur, sem virðið nafn mitt, og vængir hennar færa lækningu. Þá munuð þið koma út, stökkva eins og kálfar sem hleypt er úr fjósi.