Á fyrsta degi annars mánaðar stefndu þeir öllum söfnuðinum saman og fólkið lét skrá sig á manntalsskýrslur eftir ættum sínum og fjölskyldum, með nöfnum eftir höfðatölu,
Synir Rúbens, frumburðar Ísraels, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,
Synir Íssakars, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,
Synir Sebúlons, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,
Synir Jósefs: Synir Efraíms, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,
Synir Benjamíns, það er niðjar þeirra, voru taldir eftir ættum og fjölskyldum, eftir nöfnum og höfðatölu. Allir vopnfærir karlmenn tuttugu ára og eldri,
en þú skalt gera Levítana ábyrga fyrir tjaldbúð sáttmálstáknsins, áhöldum hennar og öllu sem henni fylgir. Þeir skulu bera tjaldbúðina og öll áhöld hennar. Þeir skulu gæta hennar og tjalda umhverfis hana.
Áður en lagt er af stað með tjaldbúðina eiga Levítarnir að taka hana niður og þegar hún kemur á áfangastað skulu þeir reisa hana. Sérhver óviðkomandi, sem nálgast hana, skal tekinn af lífi.
en Levítar skulu tjalda umhverfis tjaldbúð sáttmálstáknsins svo að reiði Guðs komi ekki yfir söfnuð Ísraelsmanna. Levítarnir skulu halda reglurnar um tjaldbúð sáttmálstáknsins.“