„Gerðu tvo lúðra úr silfri. Þú skalt gera þá með drifnu smíði. Þú skalt nota þá til að kalla saman söfnuðinn og til að gefa hernum merki til brottfarar.
Ef þið gefið merki öðru sinni með hvellum hljómi skulu hersveitirnar, sem tjalda sunnan megin, leggja af stað. Þið skuluð gefa merki til brottfarar með lúðraþyt.
Þegar þið haldið til orrustu gegn þeim sem þrengja að ykkur í landi ykkar og þið blásið í lúðrana verður ykkar minnst fyrir augliti Drottins, Guðs ykkar. Þá verður ykkur bjargað undan fjandmönnum ykkar.
Á gleðidögum ykkar og hátíðum og við upphaf mánaða skuluð þið þeyta lúðrana, einnig við brennifórnir og heillafórnir. Þeir munu minna á ykkur frammi fyrir augliti Guðs ykkar. Ég er Drottinn, Guð ykkar.“
Loks var lagt af stað með merki búða Danssona, hver hersveit þeirra fyrir sig. Her Dans var bakvarðarsveit alls hersins. Akíeser Ammísaddaíson var yfir her hans.
Móse sagði við Hóbab Regúelsson frá Midían, tengdaföður sinn: „Við erum í þann veginn að leggja af stað til þess staðar sem Drottinn hefur heitið að gefa okkur. Komdu með okkur. Við munum reynast þér vel því að Drottinn hét Ísrael velgengni.“