Einhverju sinni tók fólkið að kvarta hástöfum við Drottin yfir mótlæti sínu. Þegar Drottinn heyrði þetta blossaði reiði hans upp og eldur Drottins kviknaði og eyddi ysta hluta herbúðanna.
Fólkið gekk um til að safna því saman og malaði það í handkvörn eða steytti það í morteli. Síðan sauð fólkið það í potti og gerði úr því kökur sem voru á bragðið eins og olíukökur.
Þá sagði Móse við Drottin: „Hvers vegna leikur þú þjón þinn svo grátt? Hvers vegna finn ég ekki náð í augum þínum svo að ég rísi undir byrði alls þessa fólks.
Er ég sá sem var þungaður af öllu þessu fólki? Bar ég það í heiminn? Úr því að þú segir: Berðu þá í faðmi þér eins og fóstra ber brjóstmylking inn í landið sem þú sórst feðrum þeirra.
Drottinn sagði við Móse: „Veldu fyrir mig sjötíu menn úr hópi öldunga Ísraels sem þú veist að eru öldungar þjóðarinnar og eftirlitsmenn hennar. Þú skalt leiða þá að samfundatjaldinu og þar skulu þeir taka sér stöðu með þér.
Þá stíg ég niður og tala þar við þig og tek dálítið af andanum sem er yfir þér og legg yfir þá. Síðan skulu þeir bera þunga þjóðarinnar með þér svo að þú þurfir ekki að bera hann einn.
En þú skalt segja við þjóðina: Helgið ykkur fyrir morgundaginn. Þá skuluð þið fá kjöt að eta því að þið hafið kveinað í eyru Drottins og spurt: Hver gefur okkur kjöt að eta? Okkur leið vel í Egyptalandi. Drottinn mun því gefa ykkur kjöt að eta.
heldur heilan mánuð þangað til þið þolið ekki lyktina af því og ykkur býður við því. Því að þið hafið hafnað Drottni sem býr mitt á meðal ykkar, grátið frammi fyrir augliti hans og spurt: Hvers vegna fórum við frá Egyptalandi?“
Þá steig Drottinn niður í skýinu, ávarpaði hann og tók af andanum sem var yfir honum og lagði hann yfir öldungana sjötíu. Um leið og andinn hvíldi yfir þeim komust þeir í spámannlegan guðmóð en aðeins þetta eina sinn.
Tveir menn urðu eftir í herbúðunum. Hét annar Eldad en hinn Medad. Andinn hvíldi einnig yfir þeim enda voru þeir meðal þeirra sem höfðu verið skráðir en höfðu ekki yfirgefið tjaldið. Þeir komust í spámannlegan guðmóð í herbúðunum.
Þá tók vindur frá Drottni að blása og hrakti á undan sér lynghænsni frá hafinu og varpaði þeim yfir herbúðirnar, dagleið í allar áttir frá búðunum og mynduðu þau um það bil tveggja álna þykkt lag á jörðinni.
Fólkið safnaði lynghænsnunum saman allan þann dag, alla nóttina og allan næsta dag. Sá sem minnstu safnaði safnaði tíu kómerum. Fólkið dreifði úr lynghænsnunum umhverfis herbúðirnar.