„Sendu menn til að kanna Kanaansland sem ég er í þann veginn að gefa Ísraelsmönnum. Þið skuluð senda einn mann frá hverjum ættbálki og skal hver þeirra vera höfðingi meðal Ísraelsmanna.“
hvort landið er frjósamt eða harðbýlt, hvort þar vaxa tré eða ekki. Verið hugrakkir og komið með nokkuð af ávöxtum landsins.“ En þetta var á þeim tíma árs er fyrstu vínberin þroskast.
Þeir komu inn í Eskóldal og skáru þar af vínviðargrein með einum vínberjaklasa og þurfti tvo menn til að bera hana á burðarstöng. Einnig tóku þeir með sér nokkuð af granateplum og fíkjum.
Þeir héldu af stað og komu til Móse, Arons og alls safnaðar Ísraelsmanna í Kades í Paraneyðimörk. Þeir sögðu þeim og öllum söfnuðinum ferðasöguna og sýndu þeim ávexti landsins.
Kaleb þaggaði niður í fólkinu sem hafði snúist gegn Móse og sagði: „Við getum áreiðanlega farið og tekið landið til eignar því að við getum unnið það.“
Þeir báru út óhróður meðal Ísraelsmanna um landið sem þeir höfðu kannað og sögðu: „Landið, sem við fórum um til að kanna, gleypir íbúa sína. Allt fólk, sem við sáum í landinu, var mjög stórvaxið.