Hvers vegna ætlar Drottinn að fara með okkur til þessa lands til að fella okkur með sverði? Konur okkar og börn verða þá tekin herfangi. Væri okkur ekki betra að snúa aftur til Egyptalands?“
En gerið ekki uppreisn gegn Drottni. Óttist ekki fólkið í landinu því að það mun reynast okkur auðveld bráð. Skugginn sem verndaði það er horfinn en Drottinn er með okkur. Óttist það ekki.“
Drottinn sagði við Móse: „Hversu lengi á þessari þjóð að leyfast að fyrirlíta mig? Hversu lengi geta þeir neitað að trúa á mig þrátt fyrir öll táknin sem ég hef gert meðal þeirra?
Þá munu þeir segja við íbúa þessa lands að þeir hafi heyrt að þú, Drottinn, hafir verið mitt á meðal þessarar þjóðar og þú, Drottinn, hafir birst fyrir augum þeirra og að ský þitt hafi verið yfir þeim, að þú hafir gengið á undan þeim í skýstólpa um daga og eldstólpa um nætur.
Drottinn er seinn til reiði og gæskuríkur, fyrirgefur misgjörðir og afbrot en lætur hinum seka ekki óhegnt heldur vitjar misgjörða feðranna á börnunum í þriðja og fjórða lið.
skulu engir þeirra manna, sem hafa séð dýrð mína og táknin sem ég gerði í Egyptalandi og í eyðimörkinni og hafa nú reynt á þolinmæði mína tíu sinnum en ekki hlustað á boðskap minn,
En Kaleb þjón minn, sem hefur annan anda og fylgir mér í einu og öllu, mun ég leiða inn í landið sem hann fór til. Niðjar hans skulu taka það til eignar.
Lík ykkar munu liggja eftir hér í þessari eyðimörk, ykkar allra sem voruð taldir, ykkar allra með tölu, tuttugu ára og eldri, lík ykkar sem hafið möglað gegn mér.
Þið könnuðuð landið í fjörutíu daga og þið skuluð gjalda misgjörðar ykkar í fjörutíu ár, eitt ár fyrir hvern dag. Þannig skuluð þið komast að raun um hvað það þýðir að fá mig á móti sér.
Ég, Drottinn, hef talað. Sannarlega mun ég fara svona með þennan vonda söfnuð sem gerði samblástur gegn mér: Hér í þessari eyðimörk skulu þeir láta lífið, hér skulu þeir deyja.“
Þeir voru snemma á fótum næsta morgun og vildu fara upp í hæsta fjalllendið og sögðu: „Við erum tilbúnir. Nú höldum við upp til þess staðar sem Drottinn hefur talað um því að við höfum syndgað.“
Því að Amalekítar og Kanverjar verða þarna fyrir og þið munuð falla fyrir sverði. Fyrst þið hafið snúið baki við Drottni verður Drottinn ekki með ykkur.“