og þið ætlið að undirbúa eldfórn til Drottins, brennifórn eða sláturfórn til að efna heit eða sem sjálfviljafórn eða fórn á hátíðum ykkar til að færa Drottni þekkan ilm af nauti eða sauði,
En þegar aðkomumaður nýtur verndar meðal ykkar eða einhver, sem hefur dvalið hjá ykkur í marga ættliði, færir Drottni eldfórn sem þekkan ilm skal hann fara eins að og þið.
skal allur söfnuðurinn búa naut til brennifórnar. Ef yfirsjónin varð án vitneskju safnaðarins skal allur söfnuðurinn búa ungneyti í brennifórn sem þekkan ilm fyrir Drottin. Kornfórn, sem heyrir til, og dreypifórnin skal vera samkvæmt reglunum og að auki geithafur í syndafórn.
Presturinn skal friðþægja fyrir allan söfnuð Ísraelsmanna. Þá verður þeim fyrirgefið því að þetta var yfirsjón og þeir hafa fært fram fórnargjöf sína sem eldfórn til Drottins og fært syndafórn sína fram fyrir auglit Drottins vegna yfirsjónar sinnar.
„Ávarpaðu Ísraelsmenn og segðu við þá að þeir skuli gera skúfa á klæðafald sinn kynslóð eftir kynslóð. Þið skuluð hafa purpurabláan þráð í hverjum skúfi á klæðafaldinum
og hann skal tilheyra skúfinum. Þegar þið lítið á þá eigið þið að minnast allra boða Drottins og fylgja þeim en ekki elta það sem hjarta ykkar og augu girnast og þið hórist með.