Drottinn sagði við Aron: „Þú sjálfur, synir þínir og fjölskylda þín með þér verðið sekir vegna misgjörða gegn helgidóminum. Þú sjálfur og synir þínir með þér verðið sekir vegna misgjörða í prestsembætti ykkar.
Sjá, ég greini sjálfur bræður ykkar, Levítana, frá öðrum Ísraelsmönnum og gef ykkur þá. Þeir eru gefnir Drottni til að gegna þjónustu við samfundatjaldið.
En þú og synir þínir með þér skuluð þjóna sem prestar í öllu sem snertir altarið og það sem er innan við fortjaldið, þar skuluð þið gegna þjónustu ykkar. Ég fæ ykkur prestsembættið að gjöf. Sérhver óviðkomandi, sem kemur nærri, skal líflátinn.“
Drottinn sagði við Aron: „Hér með fel ég þér umsjón með fórnargjöfum sem mér hafa verið færðar. Ég fæ þér þær sem hluta þinn af öllum helgigjöfum Ísraelsmanna og síðan sonum þínum. Þetta er ævarandi ákvæði.
Þú skalt fá þetta af hinum háheilögu gjöfum sem ekki á að brenna: Allt sem þeir bera fram sem kornfórnir, syndafórnir og sektarfórnir og gefa mér, það er háheilagt og skal heyra þér til og sonum þínum.
Þú skalt einnig fá hluta af gjöfum þeirra, öllum veififórnum Ísraelsmanna. Þetta er gefið þér, sonum þínum og dætrum með þér. Þetta er ævarandi ákvæði. Sérhver, sem er hreinn í fjölskyldu þinni, má neyta þess.
Þú skalt fá allt sem opnar móðurlíf, af öllu því holdi sem menn færa Drottni, bæði menn og skepnur. Þú verður samt að leysa frumburði manna og frumburði óhreinna dýra.
Þú skalt leysa þá sem á að leysa þegar þeir eru mánaðargamlir og eldri. Mat þitt skal vera fimm siklar miðað við þyngd helgidómssikils, tuttugu gerur í sikli.
En frumburði nauta, sauðfjár og geita máttu ekki leysa. Þeir eru heilagir. Þú skalt stökkva blóði þeirra á altarið og mör þeirra skaltu brenna sem eldfórn, sem Drottni þekkan ilm.
Allar helgigjafir, sem Ísraelsmenn færa Drottni, hef ég gefið þér og sonum þínum og dætrum með þér. Þetta er ævarandi ákvæði, ævarandi sáttmáli, helgaður með salti, við þig og niðja þína fyrir augliti Drottins.“
Drottinn sagði við Aron: „Þú skalt ekki hljóta neinn erfðahlut í landi þeirra og enga jarðeign meðal þeirra. Ég er jarðeign þín og erfðahlutur meðal Ísraelsmanna.
En Levítarnir skulu gegna þjónustu við samfundatjaldið og bera þá sekt sem þeir baka sér. Það skal vera ævarandi ákvæði frá kyni til kyns. En þeir skulu ekki hljóta erfðahlut á meðal Ísraelsmanna
því að ég hef gefið Levítunum tíund Ísraelsmanna sem þeir færa Drottni að gjöf sem erfðahlut. Þess vegna hef ég sagt við þá: Þið fáið engin óðul meðal Ísraelsmanna.“
„Gefðu Levítunum þessi fyrirmæli: Þegar þið takið við tíundinni frá Ísraelsmönnum, sem ég hef gefið ykkur sem erfðahlut frá þeim, skuluð þið færa Drottni tíunda hlutann af tíundinni sem gjöf.