Biblían 1981
|
| 1 |
| Nú gekk Jesús niður af fjallinu, og fylgdi honum mikill mannfjöldi. |
| 2 |
| Þá kom til hans líkþrár maður, laut honum og sagði: “Herra, ef þú vilt, getur þú hreinsað mig.” |
| 3 |
| Jesús rétti út höndina, snart hann og mælti: “Ég vil, verð þú hreinn!” Jafnskjótt varð hann hreinn af líkþránni. |
| 4 |
| Jesús sagði við hann: “Gæt þess að segja þetta engum, en far þú, sýn þig prestinum, og færðu þá fórn, sem Móse bauð, þeim til vitnisburðar.” |
| 5 |
| Þegar hann kom til Kapernaum, gekk til hans hundraðshöfðingi og bað hann: |
| 6 |
| “Herra, sveinn minn liggur heima lami, mjög þungt haldinn.” |
| 7 |
| Jesús sagði: “Ég kem og lækna hann.” |
| 8 |
| Þá sagði hundraðshöfðinginn: “Herra, ég er ekki verður þess, að þú gangir inn undir þak mitt. Mæl þú aðeins eitt orð, og mun sveinn minn heill verða. |
| 9 |
| Því að sjálfur er ég maður, sem verð að lúta valdi og ræð yfir hermönnum, og ég segi við einn: ‘Far þú,’ og hann fer, og við annan: ‘Kom þú,’ og hann kemur, og við þjón minn: ‘Gjör þetta,’ og hann gjörir það.” |
| 10 |
| Þegar Jesús heyrði þetta, undraðist hann og mælti við þá, sem fylgdu honum: “Sannlega segi ég yður, þvílíka trú hef ég ekki fundið hjá neinum í Ísrael. |
| 11 |
| En ég segi yður: Margir munu koma frá austri og vestri og sitja til borðs með Abraham, Ísak og Jakob í himnaríki, |
| 12 |
| en synir ríkisins munu út reknir í ystu myrkur. Þar verður grátur og gnístran tanna.” |
| 13 |
| Þá sagði Jesús við hundraðshöfðingjann: “Far þú, verði þér sem þú trúir.” Og sveinninn varð heill á þeirri stundu. |
| 14 |
| Jesús kom í hús Péturs og sá, að tengdamóðir hans lá með sótthita. |
| 15 |
| Hann snart hönd hennar, og sótthitinn fór úr henni. Hún reis á fætur og gekk honum fyrir beina. |
| 16 |
| Þegar kvöld var komið, færðu menn til hans marga, er haldnir voru illum öndum. Illu andana rak hann út með orði einu, og alla þá, er sjúkir voru, læknaði hann. |
| 17 |
| Það átti að rætast, sem sagt er fyrir munn Jesaja spámanns: “Hann tók á sig mein vor og bar sjúkdóma vora.” |
| 18 |
| En þegar Jesús sá mikinn mannfjölda kringum sig, bauð hann að fara yfir um vatnið. |
| 19 |
| Þá kom fræðimaður einn til hans og sagði: “Meistari, ég vil fylgja þér, hvert sem þú ferð.” |
| 20 |
| Jesús sagði við hann: “Refar eiga greni og fuglar himins hreiður, en Mannssonurinn á hvergi höfði sínu að að halla.” |
| 21 |
| Annar, úr hópi lærisveinanna, sagði við hann: “Herra, leyf mér fyrst að fara og jarða föður minn.” |
| 22 |
| Jesús svarar honum: “Fylg þú mér, en lát hina dauðu jarða sína dauðu.” |
| 23 |
| Nú fór hann í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. |
| 24 |
| Þá gjörði svo mikið veður á vatninu, að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. |
| 25 |
| Þeir fara til, vekja hann og segja: “Herra, bjarga þú, vér förumst.” |
| 26 |
| Hann sagði við þá: “Hví eruð þér hræddir, þér trúlitlir?” Síðan reis hann upp og hastaði á vindinn og vatnið, og varð stillilogn. |
| 27 |
| Mennirnir undruðust og sögðu: “Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.” |
| 28 |
| Þegar hann kom yfir um, í byggð Gadarena, komu á móti honum frá gröfunum tveir menn haldnir illum öndum, svo skæðir, að enginn mátti þann veg fara. |
| 29 |
| Þeir æpa: “Hvað vilt þú okkur, sonur Guðs? Komstu hingað að kvelja okkur fyrir tímann?” |
| 30 |
| En langt frá þeim var mikil svínahjörð á beit. |
| 31 |
| Illu andarnir báðu hann og sögðu: “Ef þú rekur okkur út, sendu okkur þá í svínahjörðina.” |
| 32 |
| Hann sagði: “Farið!” Út fóru þeir og í svínin, og öll hjörðin ruddist fram af hamrinum í vatnið og týndist þar. |
| 33 |
| En hirðarnir flýðu, komu til borgarinnar og sögðu öll tíðindin, líka frá mönnunum, sem haldnir voru illum öndum. |
| 34 |
| Og allir borgarmenn fóru út til móts við Jesú, og þegar þeir sáu hann, báðu þeir hann að fara burt úr héruðum þeirra. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/matthew/008.mp3
28
8