Þegar hvíldardagur var kominn tók hann að kenna í samkundunni. Fjöldinn sem á hlýddi undraðist stórum. Menn sögðu: „Hvaðan kemur honum þetta? Hver er sú speki sem honum er gefin og hvernig getur hann gert slík kraftaverk?
Er þetta ekki smiðurinn, sonur Maríu, bróðir þeirra Jakobs, Jóse, Júdasar og Símonar? Og eru ekki systur hans hér hjá okkur?“ Og þeir hneyksluðust á honum.
Heródes konungur frétti þetta enda var nafn Jesú orðið víðfrægt. Sögðu sumir: „Jóhannes skírari er risinn upp frá dauðum, þess vegna gerir hann þessi kraftaverk.“
En Heródes hafði sent menn að taka Jóhannes höndum, fjötra hann og varpa í fangelsi vegna Heródíasar, konu Filippusar, bróður síns. Hann hafði gengið að eiga hana
því að Heródes hafði beyg af honum og verndaði hann þar eð hann vissi að hann var maður réttlátur og heilagur. Hann komst í mikinn vanda þegar hann hlýddi á mál hans en þó var honum ljúft að hlusta á hann.
Dóttir Heródíasar gekk þar inn og sté dans. Hún hreif Heródes og gesti hans og konungur sagði við stúlkuna: „Bið mig hvers þú vilt og mun ég veita þér.“
Hann sagði við þá: „Komið nú á óbyggðan stað, svo að við séum einir saman, og hvílist um stund.“ En fjöldi fólks var stöðugt að koma og fara svo að þeir höfðu ekki einu sinni næði til að matast.
Þegar Jesús steig á land sá hann þar margt manna og hann kenndi í brjósti um þá því að þeir voru sem sauðir er engan hirði hafa. Og hann kenndi þeim margt.
Og Jesús tók brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, þakkaði Guði, braut brauðin og gaf lærisveinunum til að bera fram fyrir mannfjöldann. Fiskunum tveim skipti hann og meðal allra.
Hann sá að þeim var þungur róðurinn því að vindur var á móti þeim og er langt var liðið nætur kemur hann til þeirra gangandi á vatninu og ætlar fram hjá þeim.
Og hvar sem Jesús kom í þorp, borgir eða bæi lögðu menn sjúka á torgin og báðu hann að þeir fengju rétt að snerta fald klæða hans og allir þeir sem snertu hann urðu heilir.