Biblían 1981
|
| 1 |
| Hátíð páskanna var að ganga í garð. Jesús vissi, að stund hans var kominn og að hann færi burt úr þessum heimi til föðurins. Hann hafði elskað sína, þá sem í heiminum voru. Hann elskaði þá, uns yfir lauk. |
| 2 |
| Kvöldmáltíð stóð yfir. Djöfullinn hafði þegar blásið því í brjóst Júdasi Símonarsyni Ískaríots að svíkja Jesú. |
| 3 |
| Jesús vissi, að faðirinn hafði lagt allt í hendur honum, að hann var frá Guði kominn og var að fara til Guðs. |
| 4 |
| Hann stóð upp frá máltíðinni, lagði af sér yfirhöfnina, tók líndúk og batt um sig. |
| 5 |
| Síðan hellti hann vatni í mundlaug og tók að þvo fætur lærisveinanna og þerra með líndúknum, sem hann hafði um sig. |
| 6 |
| Hann kemur þá að Símoni Pétri, sem segir við hann: “Herra, ætlar þú að þvo mér um fæturna?” |
| 7 |
| Jesús svaraði: “Nú skilur þú ekki, hvað ég er að gjöra, en seinna muntu skilja það.” |
| 8 |
| Pétur segir við hann: “Aldrei að eilífu skaltu þvo fætur mína.” Jesús svaraði: “Ef ég þvæ þér ekki, áttu enga samleið með mér.” |
| 9 |
| Símon Pétur segir við hann: “Herra, ekki aðeins fætur mína, líka hendurnar og höfuðið.” |
| 10 |
| Jesús segir við hann: “Sá sem laugast hefur, þarf ekki að þvost nema um fætur. Hann er allur hreinn. Og þér eruð hreinir, þó ekki allir.” |
| 11 |
| Hann vissi, hver mundi svíkja hann, og því sagði hann: “Þér eruð ekki allir hreinir.” |
| 12 |
| Þegar hann hafði þvegið fætur þeirra, tekið yfirhöfn sína og setst aftur niður, sagði hann við þá: “Skiljið þér, hvað ég hef gjört við yður? |
| 13 |
| Þér kallið mig meistara og herra, og þér mælið rétt, því það er ég. |
| 14 |
| Fyrst ég, sem er herra og meistari, hef nú þvegið yður um fæturna, þá ber yður einnig að þvo hver annars fætur. |
| 15 |
| Ég hef gefið yður eftirdæmi, að þér breytið eins og ég breytti við yður. |
| 16 |
| Sannlega, sannlega segi ég yður: Þjónn er ekki meiri en herra hans né sendiboði meiri þeim, er sendi hann. |
| 17 |
| Þér vitið þetta, og þér eruð sælir, ef þér breytið eftir því. |
| 18 |
| Ég tala ekki um yður alla. Ég veit, hverja ég hef útvalið. En ritningin verður að rætast: ‘Sá sem etur brauð mitt, lyftir hæli sínum móti mér.’ |
| 19 |
| Ég segi yður þetta núna, áður en það verður, svo að þér trúið, þegar það er orðið, að ég er sá sem ég er. |
| 20 |
| Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem tekur við þeim, sem ég sendi, hann tekur við mér, og sá sem tekur við mér, tekur við þeim er sendi mig.” |
| 21 |
| Þegar Jesús hafði sagt þetta, varð honum mjög þungt um hjarta og hann sagði beinum orðum: “Sannlega, sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig.” |
| 22 |
| Lærisveinarnir litu hver á annan og skildu ekki, við hvern hann ætti. |
| 23 |
| Sá lærisveinn Jesú, sem hann elskaði, sat næstur honum. |
| 24 |
| Símon Pétur benti honum og bað hann spyrja, hver sá væri, sem Jesús talaði um. |
| 25 |
| Hann laut þá að Jesú og spurði: “Herra, hver er það?” |
| 26 |
| Jesús svaraði: “Það er sá sem ég fæ bita þann, er ég dýfi nú í.” Þá dýfði hann í bitanum, tók hann og fékk Júdasi Símonarsyni Ískaríots. |
| 27 |
| Og eftir þann bita fór Satan inn í hann. Jesús segir við hann: “Það sem þú gjörir, það gjör þú skjótt!” |
| 28 |
| En enginn þeirra, sem sátu til borðs, vissi til hvers hann sagði þetta við hann. |
| 29 |
| En af því að Júdas hafði pyngjuna, héldu sumir þeirra, að Jesús hefði sagt við hann: “Kauptu það, sem vér þurfum til hátíðarinnar,” - eða að hann skyldi gefa eitthvað fátækum. |
| 30 |
| Þá er hann hafði tekið við bitanum, gekk hann jafnskjótt út. Þá var nótt. |
| 31 |
| Þegar hann var farinn út, sagði Jesús: “Nú er Mannssonurinn dýrlegur orðinn, og Guð er orðinn dýrlegur í honum. |
| 32 |
| Fyrst Guð er orðinn dýrlegur í honum, mun Guð og gjöra hann dýrlegan í sér, og skjótt mun hann gjöra hann dýrlegan. |
| 33 |
| Börnin mín, stutta stund verð ég enn með yður. Þér munuð leita mín, og eins og ég sagði Gyðingum, segi ég yður nú: Þangað sem ég fer, getið þér ekki komist. |
| 34 |
| Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hver annan. Eins og ég hef elskað yður, skuluð þér einnig elska hver annan. |
| 35 |
| Á því munu allir þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars.” |
| 36 |
| Símon Pétur segir við hann: “Herra, hvert ferðu?” Jesús svaraði: “Þú getur ekki fylgt mér nú þangað sem ég fer, en síðar muntu fylgja mér.” |
| 37 |
| Pétur segir við hann: “Herra, hví get ég ekki fylgt þér nú? Ég vil leggja líf mitt í sölurnar fyrir þig.” |
| 38 |
| Jesús svaraði: “Viltu leggja líf þitt í sölurnar fyrir mig? Sannlega, sannlega segi ég þér: Ekki mun hani gala fyrr en þú hefur afneitað mér þrisvar.” |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/john/013.mp3
21
13