Biblían 1981
|
| 1 |
| Þá lét Pílatus taka Jesú og húðstrýkja hann. |
| 2 |
| Hermennirnir fléttuðu kórónu úr þyrnum og settu á höfuð honum og lögðu yfir hann purpurakápu. |
| 3 |
| Þeir gengu hver af öðrum fyrir hann og sögðu: “Sæll þú, konungur Gyðinga,” og slógu hann í andlitið. |
| 4 |
| Pílatus gekk aftur út fyrir og sagði við þá: “Nú leiði ég hann út til yðar, svo að þér skiljið, að ég finn enga sök hjá honum.” |
| 5 |
| Jesús kom þá út fyrir með þyrnikórónuna og í purpurakápunni. Pílatus segir við þá: “Sjáið manninn!” |
| 6 |
| Þegar æðstu prestarnir og verðirnir sáu hann, æptu þeir: “Krossfestu, krossfestu!” Pílatus sagði við þá: “Takið þér hann og krossfestið. Ég finn enga sök hjá honum.” |
| 7 |
| Gyðingar svöruðu: “Vér höfum lögmál, og samkvæmt lögmálinu á hann að deyja, því hann hefur gjört sjálfan sig að Guðs syni.” |
| 8 |
| Þegar Pílatus heyrði þessi orð, varð hann enn hræddari. |
| 9 |
| Hann fór aftur inn í höllina og segir við Jesú: “Hvaðan ertu?” En Jesús veitti honum ekkert svar. |
| 10 |
| Pílatus segir þá við hann: “Viltu ekki tala við mig? Veistu ekki, að ég hef vald til að láta þig lausan, og ég hef vald til að krossfesta þig?” |
| 11 |
| Jesús svaraði: “Þú hefðir ekkert vald yfir mér, ef þér væri ekki gefið það að ofan. Fyrir því ber sá þyngri sök, sem hefur selt mig þér í hendur.” |
| 12 |
| Eftir þetta reyndi Pílatus enn að láta hann lausan. En Gyðingar æptu: “Ef þú lætur hann lausan, ert þú ekki vinur keisarans. Hver sem gjörir sjálfan sig að konungi, rís á móti keisaranum.” |
| 13 |
| Þegar Pílatus heyrði þessi orð, leiddi hann Jesú út og settist í dómstólinn á stað þeim, sem nefnist Steinhlað, á hebresku Gabbata. |
| 14 |
| Þá var aðfangadagur páska, um hádegi. Hann sagði við Gyðinga: “Sjáið þar konung yðar!” |
| 15 |
| Þá æptu þeir: “Burt með hann! Burt með hann! Krossfestu hann!” Pílatus segir við þá: “Á ég að krossfesta konung yðar?” Æðstu prestarnir svöruðu: “Vér höfum engan konung nema keisarann.” |
| 16 |
| Þá seldi hann þeim hann í hendur, að hann yrði krossfestur. Þeir tóku þá við Jesú. |
| 17 |
| Og hann bar kross sinn og fór út til staðar, sem nefnist Hauskúpa, á hebresku Golgata. |
| 18 |
| Þar krossfestu þeir hann og með honum tvo aðra sinn til hvorrar handar; Jesús í miðið. |
| 19 |
| Pílatus hafði ritað yfirskrift og sett hana á krossinn. Þar stóð skrifað: JESÚS FRÁ NASARET, KONUNGUR GYÐINGA. |
| 20 |
| Margir Gyðingar lásu þessa yfirskrift, því staðurinn, þar sem Jesús var krossfestur, var nærri borginni, og þetta var ritað á hebresku, latínu og grísku. |
| 21 |
| Þá sögðu æðstu prestar Gyðinga við Pílatus: “Skrifaðu ekki ‘konungur Gyðinga’, heldur að hann hafi sagt: ‘Ég er konungur Gyðinga’.” |
| 22 |
| Pílatus svaraði: “Það sem ég hef skrifað, það hef ég skrifað.” |
| 23 |
| Þegar hermennirnir höfðu krossfest Jesú, tóku þeir klæði hans og skiptu í fjóra hluti, og fékk hver sinn hlut. Þeir tóku og kyrtilinn, en hann var saumlaus, ofinn í eitt ofan frá og niður úr. |
| 24 |
| Þeir sögðu því hver við annan: “Rífum hann ekki sundur, köstum heldur hlut um, hver skuli fá hann.” Svo rættist ritningin: Þeir skiptu með sér klæðum mínum og köstuðu hlut um kyrtil minn. Þetta gjörðu hermennirnir. |
| 25 |
| En hjá krossi Jesú stóðu móðir hans og móðursystir, María, kona Klópa, og María Magdalena. |
| 26 |
| Þegar Jesús sá móður sína standa þar og lærisveininn, sem hann elskaði, segir hann við móður sína: “Kona, nú er hann sonur þinn.” |
| 27 |
| Síðan sagði hann við lærisveininn: “Nú er hún móðir þín.” Og frá þeirri stundu tók lærisveinninn hana heim til sín. |
| 28 |
| Jesús vissi, að allt var þegar fullkomnað. Þá sagði hann, til þess að ritningin rættist: “Mig þyrstir.” |
| 29 |
| Þar stóð ker fullt af ediki. Þeir settu njarðarvött fylltan ediki á ísópslegg og báru að munni honum. |
| 30 |
| Þegar Jesús hafði fengið edikið, sagði hann: “Það er fullkomnað.” Þá hneigði hann höfuðið og gaf upp andann. |
| 31 |
| Nú var aðfangadagur, og til þess að líkin væru ekki á krossunum hvíldardaginn, báðu Gyðingar Pílatus að láta brjóta fótleggi þeirra og taka líkin ofan, enda var mikil helgi þess hvíldardags. |
| 32 |
| Hermenn komu því og brutu fótleggi þeirra, sem með honum voru krossfestir, fyrst annars, svo hins. |
| 33 |
| Þegar þeir komu að Jesú og sáu, að hann var þegar dáinn, brutu þeir ekki fótleggi hans. |
| 34 |
| En einn af hermönnunum stakk spjóti sínu í síðu hans, og rann jafnskjótt út blóð og vatn. |
| 35 |
| Sá er séð hefur, vitnar þetta, svo að þér trúið líka og vitnisburður hans er sannur. Og hann veit, að hann segir satt. |
| 36 |
| Þetta varð til þess, að ritningin rættist: “Ekkert bein hans skal brotið.” |
| 37 |
| Og enn segir önnur ritning: “Þeir munu horfa til hans, sem þeir stungu.” |
| 38 |
| Jósef frá Arímaþeu, sem var lærisveinn Jesú, en á laun af ótta við Gyðinga, bað síðan Pílatus að mega taka ofan líkama Jesú. Pílatus leyfði það. Hann kom þá og tók ofan líkama hans. |
| 39 |
| Þar kom líka Nikódemus, er fyrrum hafði komið til hans um nótt, og hafði með sér blöndu af myrru og alóe, nær hundrað pundum. |
| 40 |
| Þeir tóku nú líkama Jesú og sveipuðu hann línblæjum með ilmjurtunum, eins og Gyðingar búa lík til greftrunar. |
| 41 |
| En á staðnum, þar sem hann var krossfestur, var grasgarður og í garðinum ný gröf, sem enginn hafði enn verið lagður í. |
| 42 |
| Þar lögðu þeir Jesú, því það var aðfangadagur Gyðinga, og gröfin var nærri. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/john/019.mp3
21
19