„Ég er Gyðingur, fæddur í Tarsus í Kilikíu en alinn upp í þessari borg. Við fætur Gamalíels hlaut ég fyllstu uppfræðslu í lögmáli feðra vorra. Guðs stríðsmaður vildi ég vera ekki síður en þið allir í dag.
Æðsti presturinn og allt öldungaráðið geta borið mér vitni um þetta. Hjá þeim fékk ég bréf til bræðranna í Damaskus og fór þangað til að flytja einnig þá er þar voru í böndum til Jerúsalem að þeim yrði refsað.
skipaði hersveitarforinginn að fara með hann inn í kastalann, hýða hann og kúga hann með því til sagna svo að hann kæmist að því fyrir hverja sök þeir gerðu slík óp að honum.
En þá er þeir strengdu hann undir höggin sagði Páll við hundraðshöfðingjann er hjá stóð: „Leyfist ykkur að húðstrýkja rómverskan mann og það án dóms og laga?“
Þeir sem áttu að kúga hann til sagna viku nú jafnskjótt frá honum. Og hersveitarforinginn varð hræddur er hann varð þess vís að það var rómverskur maður sem hann hafði látið binda.
Daginn eftir vildi hann ganga úr skugga um fyrir hvað Gyðingar kærðu hann, lét leysa hann og bauð að æðstu prestarnir og allt ráðið kæmi saman. Síðan kom hann ofan með Pál og leiddi hann fram fyrir þá.