Þá sagði Páll við hann: „Guð mun ljósta þig, kalkaði veggur. Hér situr þú til að dæma mig samkvæmt lögmálinu og skipar þó þvert ofan í lögmálið að slá mig.“
Nú vissi Páll að sumir þeirra voru saddúkear en aðrir farísear og hann hrópaði upp í ráðinu: „Bræður, ég er farísei, af faríseum kominn. Ég er lögsóttur fyrir vonina um upprisu dauðra.“
Nú varð hróp mikið og nokkrir fræðimenn af flokki farísea risu upp og fullyrtu: „Við sjáum ekki að þessi maður hafi brotið af sér. Gæti ekki hugsast að andi hafi talað við hann eða engill?“
Deilan harðnaði og hersveitarforinginn fór að óttast að þeir ætluðu að slíta Pál í sundur. Því skipaði hann herliðinu að koma ofan, taka hann af þeim og færa hann inn í kastalann.
Nú skuluð þið og ráðið leggja til við hersveitarforingjann að hann láti senda hann niður til ykkar svo sem vilduð þið kynna ykkur mál hans rækilegar. En við erum við því búnir að vega hann áður en hann kemst alla leið.“
Páll kallaði til sín einn hundraðshöfðingjann og mælti: „Far þú með þennan unga mann til hersveitarforingjans því að hann hefur nokkuð að segja honum.“
Hundraðshöfðinginn tók hann með sér, fór með hann til hersveitarforingjans og sagði: „Fanginn Páll kallaði mig til sín og bað mig að fara til þín með þennan unga mann. Hann hefur eitthvað að segja þér.“
En lát þú ekki að vilja þeirra því að menn þeirra, fleiri en fjörutíu, sitja fyrir honum og hafa svarið þess eið að eta hvorki né drekka fyrr en þeir hafi vegið hann. Nú eru þeir viðbúnir og bíða eftir að svarið komi frá þér.“
Hann kallaði fyrir sig tvo hundraðshöfðingja og sagði: „Látið tvö hundruð hermenn vera tilbúna að fara til Sesareu eftir náttmál, auk þess sjötíu riddara og tvö hundruð léttliða.
Mann þennan höfðu Gyðingar tekið höndum og voru í þann veginn að taka af lífi er ég kom að með hermönnum. Ég komst að því að hann er rómverskur og bjargaði honum.
En þar sem ég hef fengið bendingu um að setið sé um líf mannsins sendi ég hann tafarlaust til þín. Ég hef jafnframt boðið ákærendum hans að flytja mál sitt gegn honum fyrir þér.“