|
| 1 |
|
| Ég tala sannleika í Kristi, ég lýg ekki. Samviska mín vitnar það með mér, upplýst af heilögum anda, |
|
| 2 |
|
| að ég hef hryggð mikla og sífellda kvöl í hjarta mínu. |
|
| 3 |
|
| Ég gæti óskað, að mér væri sjálfum útskúfað frá Kristi, ef það yrði til heilla fyrir bræður mína og ættmenn, |
|
| 4 |
|
| Ísraelsmenn. Þeir fengu sonarréttinn, dýrðina, sáttmálana, löggjöfina, helgihaldið og fyrirheitin. |
|
| 5 |
|
| Þeim tilheyra og feðurnir, og af þeim er Kristur kominn sem maður, hann sem er yfir öllu, Guð, blessaður um aldir. Amen. |
|
| 6 |
|
| Það er ekki svo sem Guðs orð hafi brugðist. Því að ekki eru allir þeir Ísraelsmenn, sem af Ísrael eru komnir. |
|
| 7 |
|
| Ekki eru heldur allir börn Abrahams, þótt þeir séu niðjar hans, heldur: “Afkomendur Ísaks munu taldir verða niðjar þínir.” |
|
| 8 |
|
| Það merkir: Ekki eru líkamlegir afkomendur hans Guðs börn, heldur teljast fyrirheitsbörnin sannir niðjar. |
|
| 9 |
|
| Því að þetta orð er fyrirheit: “Í þetta mund mun ég aftur koma, og þá skal Sara hafa son alið.” |
|
| 10 |
|
| Og ekki nóg með það. Því var líka svo farið með Rebekku. Hún var þunguð að tveim sveinum af eins manns völdum, Ísaks föður vors. |
|
| 11 |
|
| Nú, til þess að það stæði stöðugt, að ákvörðun Guðs um útvalningu væri óháð verkunum og öll komin undir vilja þess, er kallar, |
|
| 12 |
|
| þá var henni sagt, áður en sveinarnir voru fæddir og áður en þeir höfðu aðhafst gott eða illt: “Hinn eldri skal þjóna hinum yngri.” |
|
| 13 |
|
| Eins og ritað er: “Jakob elskaði ég, en Esaú hataði ég.” |
|
| 14 |
|
| Hvað eigum vér þá að segja? Er Guð óréttvís? Fjarri fer því. |
|
| 15 |
|
| Því hann segir við Móse: “Ég mun miskunna þeim, sem ég vil miskunna, og líkna þeim, sem ég vil líkna.” |
|
| 16 |
|
| Það er því ekki komið undir vilja mannsins né áreynslu, heldur Guði, sem miskunnar. |
|
| 17 |
|
| Því er í Ritningunni sagt við Faraó: “Einmitt til þess hóf ég þig, að ég fengi sýnt mátt minn á þér og nafn mitt yrði boðað um alla jörðina.” |
|
| 18 |
|
| Svo miskunnar hann þá þeim, sem hann vill, en forherðir þann, sem hann vill. |
|
| 19 |
|
| Þú munt nú vilja segja við mig: “Hvað er hann þá að ásaka oss framar? Hver fær staðið gegn vilja hans?” |
|
| 20 |
|
| Hver ert þú, maður, að þú skulir deila á Guð? Hvort mundi smíðisgripurinn segja við smiðinn: “Hví gjörðir þú mig svona?” |
|
| 21 |
|
| Eða hefur ekki leirkerasmiðurinn leirinn á valdi sínu, svo að hann megi gjöra úr sama deiginu ker til sæmdar og annað til vansæmdar? |
|
| 22 |
|
| En ef nú Guð, sem vildi sýna reiði sína og auglýsa mátt sinn, hefur með miklu langlyndi umborið ker reiðinnar, sem búin eru til glötunar, |
|
| 23 |
|
| og ef hann hefur gjört það til þess að auglýsa ríkdóm dýrðar sinnar á kerum miskunnarinnar, sem hann hafði fyrirfram búið til dýrðar? |
|
| 24 |
|
| Slík ker erum vér, sem hann hefur kallað, ekki aðeins úr flokki Gyðinga, heldur og úr flokki heiðingja. |
|
| 25 |
|
| Eins og hann líka segir hjá Hósea: Lýð, sem ekki var minn, mun ég kalla minn, og þá elskaða, sem ekki var elskuð, |
|
| 26 |
|
| og á þeim stað, þar sem við þá var sagt: þér eruð ekki minn lýður, þar munu þeir verða kallaðir synir Guðs lifanda. |
|
| 27 |
|
| En Jesaja hrópar yfir Ísrael: “Þótt tala Ísraels sona væri eins og sandur sjávarins, þá skulu leifar einar frelsaðar verða. |
|
| 28 |
|
| Drottinn mun gjöra upp reikning sinn á jörðunni, binda enda á hann og ljúka við hann í skyndi,” |
|
| 29 |
|
| og eins hefur Jesaja sagt: “Ef Drottinn hersveitanna hefði ekki látið oss eftir niðja, værum vér orðnir eins og Sódóma, vér værum líkir Gómorru.” |
|
| 30 |
|
| Hvað eigum vér þá að segja? Heiðingjarnir, sem ekki sóttust eftir réttlæti, hafa öðlast réttlæti, - réttlæti, sem er af trú. |
|
| 31 |
|
| En Ísrael, sem vildi halda lögmál er veitt gæti réttlæti, náði því ekki. |
|
| 32 |
|
| Hvers vegna? Af því að þeir ætluðu sér að réttlætast með verkum, ekki af trú. Þeir hnutu um ásteytingarsteininn, |
|
| 33 |
|
| eins og ritað er: Sjá ég set í Síon ásteytingarstein og hrösunarhellu. Sérhver, sem á hann trúir, mun ekki verða til skammar. |
|
|
|
|