Ég vildi að þið töluðuð öll tungum en þó enn framar að þið hefðuð spámannlega gáfu. Það er meira vert en að tala tungum nema það sé útlagt, svo að söfnuðurinn hljóti uppbyggingu.
Ef dauðir hlutir, sem gefa hljóð frá sér, hvort heldur er pípa eða harpa, gefa ekki mismunandi hljóð frá sér, hvernig geta menn þá vitað hvað leikið er á pípuna eða hörpuna?
Hvernig er því þá farið? Ég vil biðja með anda en ég vil einnig biðja með skilningi. Ég vil lofsyngja með anda en ég vil einnig lofsyngja með skilningi.
Ef þú lofar Guð með anda hvernig á þá venjulegur maður sem er viðstaddur að geta sagt amen við þakkargjörð þinni þar sem hann skilur ekki hvað þú ert að segja?
Ef nú allur söfnuðurinn kæmi saman og allir töluðu tungum og inn kæmu menn utan safnaðar eða vantrúaðir, mundu þeir þá ekki segja: „Þið eruð vitstola“?
En ef allir töluðu af spámannlegri andagift og inn kæmi einhver vantrúaður maður utan safnaðar, þá mundu allir sannfæra hann og láta hann standa fyrir máli sínu.
Hvernig er það þá, kæri söfnuður? Þegar þið komið saman þá hefur hver sitt fram að færa: sálm, kenningu, opinberun, tungutal, útlistun. Allt skal miða til uppbyggingar.