Hver fer nokkurn tíma í stríð á eigin kostnað? Hver plantar víngarð og neytir ekki ávaxtar hans? Hver gætir hjarðar og neytir ekki af mjólk hjarðarinnar?
Eða segir hann það ekki öllu heldur okkar vegna? Jú, okkar vegna stendur skrifað að sá sem plægir og sá sem þreskir eigi að gera það með von um hlutdeild í uppskerunni.
Ef aðrir hafa þennan rétt hjá ykkur, hef ég hann þá ekki miklu fremur? En ég hef ekki hagnýtt mér þennan rétt heldur sætti mig við allt til þess að tálma ekki fagnaðarerindinu um Krist.
Vitið þið ekki að þeir sem vinna við helgidóminn lifa af því sem kemur úr helgidóminum og þeir sem starfa við altarið fá hlut af því sem fórnað er á altarinu?
En ég hef ekki hagnýtt mér neitt af þessu og ég skrifa þetta ekki heldur til þess að svo verði við mig gert. Mér væri betra að deyja. Enginn skal ónýta það sem ég tel mér til gildis.
Ég hef verið Gyðingum sem Gyðingur til þess að ávinna Gyðinga. Þótt ég lifi ekki eftir lögmáli Móse breyti ég eftir því til þess að ávinna þá sem fara eftir því.