|
| 1 |
|
| Páll postuli − ekki sendur af mönnum né að tilhlutun manns heldur að tilhlutun Jesú Krists og Guðs föður sem uppvakti hann frá dauðum − |
|
| 2 |
|
| og allir trúaðir, sem með mér eru, heilsa söfnuðunum í Galatalandi. |
|
| 3 |
|
| Náð sé með yður og friður frá Guði föður og Drottni vorum Jesú Kristi |
|
| 4 |
|
| sem gaf sjálfan sig fyrir syndir okkar til þess að frelsa okkur frá hinni yfirstandandi vondu öld samkvæmt vilja Guðs vors og föður. |
|
| 5 |
|
| Honum sé dýrð um aldir alda. Amen. |
|
| 6 |
|
| Mig furðar að þið svo fljótt látið snúast frá honum sem kallaði ykkur í náð Krists til annars konar fagnaðarerindis. |
|
| 7 |
|
| Það er þó ekkert fagnaðarerindi heldur eru einhverjir að trufla ykkur og vilja umhverfa fagnaðarerindinu um Krist. |
|
| 8 |
|
| En þótt jafnvel ég eða engill frá himni færi að boða ykkur annað fagnaðarerindi en það sem ég hef boðað ykkur, þá sé hann bölvaður. |
|
| 9 |
|
| Eins og ég hef áður sagt, eins segi ég nú aftur: Ef nokkur boðar ykkur annað fagnaðarerindi en það sem þið hafið numið þá sé hann bölvaður. |
|
| 10 |
|
| Er ég nú að reyna að sannfæra menn eða Guð? Er ég að leitast við að þóknast mönnum? Ef ég væri enn að þóknast mönnum þá væri ég ekki þjónn Krists. |
|
| 11 |
|
| Það læt ég ykkur vita, bræður mínir og systur, að fagnaðarerindið, sem ég hef boðað, er ekki mannaverk. |
|
| 12 |
|
| Ekki hef ég tekið við því af manni né látið kenna mér það heldur hefur Jesús Kristur opinberað mér það. |
|
| 13 |
|
| Þið hafið heyrt um hegðun mína áður fyrri í gyðingdóminum, hversu ákaflega ég ofsótti kirkju Guðs og vildi eyða henni. |
|
| 14 |
|
| Ég fór lengra í gyðingdóminum en margir jafnaldrar mínir meðal þjóðar minnar og var miklu vandlátari um erfikenningu forfeðra minna. |
|
| 15 |
|
| En þegar Guði, sem hafði útvalið mig frá móðurlífi og af náð sinni kallað, |
|
| 16 |
|
| þóknaðist að opinbera mér son sinn til þess að ég boðaði heiðingjunum fagnaðarerindið um hann, þá ráðgaðist ég ekki við neinn mann. |
|
| 17 |
|
| Ekki fór ég heldur upp til Jerúsalem til þeirra sem voru postular á undan mér, heldur fór ég jafnskjótt til Arabíu og sneri svo aftur til Damaskus. |
|
| 18 |
|
| Það var fyrst eftir þrjú ár að ég fór upp til Jerúsalem til að ráðgast við Kefas og dvaldist hjá honum hálfan mánuð. |
|
| 19 |
|
| Ég sá engan af hinum postulunum nema Jakob, bróður Drottins. |
|
| 20 |
|
| Guð veit að ég lýg því ekki sem ég skrifa ykkur. |
|
| 21 |
|
| Síðan kom ég í héruð Sýrlands og Kilikíu. |
|
| 22 |
|
| Kristnu söfnuðirnir í Júdeu þekktu mig ekki í sjón. |
|
| 23 |
|
| Þeir höfðu einungis heyrt sagt: „Sá sem áður ofsótti okkur boðar nú trúna sem hann áður vildi eyða.“ |
|
| 24 |
|
| Og þeir vegsömuðu Guð vegna mín. |
|
|
|
|