Hvað um það, - sá sem veitir yður andann og framkvæmir máttarverk meðal yðar, gjörir hann það vegna lögmálsverka yðar eða vegna þess að þér heyrið og trúið?
Ritningin sá það fyrir, að Guð mundi réttlæta heiðingjana fyrir trú, og því boðaði hún Abraham fyrirfram þann fagnaðarboðskap: “Af þér skulu allar þjóðir blessun hljóta.”
En bölvun hvílir á öllum þeim, sem byggja á lögmálsverkum, því að ritað er: “Bölvaður er sá, sem ekki heldur fast við allt það, sem í lögmálsbókinni er ritað, og breytir eftir því.”
Nú voru fyrirheitin gefin Abraham og afkvæmi hans, - þar stendur ekki “og afkvæmum”, eins og margir ættu í hlut, heldur “og afkvæmi þínu”, eins og þegar um einn er að ræða, og það er Kristur.
Með þessu vildi ég sagt hafa: Sáttmála, sem áður var staðfestur af Guði, getur lögmálið, sem kom fjögur hundruð og þrjátíu árum síðar, ekki ónýtt, svo að það felli fyrirheitið úr gildi.
Hvað er þá lögmálið? Vegna afbrotanna var því bætt við, þangað til afkvæmið kæmi, sem fyrirheitið hljóðaði um. Fyrir umsýslan engla er það til orðið, fyrir tilstilli meðalgangara.