|
| 1 |
|
| Til frelsis frelsaði Kristur oss. Standið því stöðugir og látið ekki aftur leggja á yður ánauðarok. |
|
| 2 |
|
| Takið eftir því, sem ég, Páll, segi yður: Ef þér látið umskerast, þá gagnar Kristur yður ekkert. |
|
| 3 |
|
| Og enn vitna ég fyrir hverjum manni, sem lætur umskerast: Hann er skyldur til að halda allt lögmálið. |
|
| 4 |
|
| Þér eruð orðnir viðskila við Krist, þér sem ætlið að réttlætast með lögmáli. Þér eruð fallnir úr náðinni. |
|
| 5 |
|
| En vér væntum í andanum að öðlast af trúnni réttlætinguna, sem er von vor. |
|
| 6 |
|
| Í Kristi Jesú er ekkert komið undir umskurn né yfirhúð, heldur undir trú, sem starfar í kærleika. |
|
| 7 |
|
| Þér hlupuð vel. Hver hefur hindrað yður í að hlýða sannleikanum? |
|
| 8 |
|
| Þær fortölur voru ekki frá honum, sem kallaði yður. |
|
| 9 |
|
| Lítið súrdeig sýrir allt deigið. |
|
| 10 |
|
| Ég hef það traust til yðar í Drottni, að þér verðið sama sinnis og ég. Sá sem truflar yður mun bera sinn dóm, hver sem hann svo er. |
|
| 11 |
|
| En hvað mig snertir, bræður, ef ég er enn þá að prédika umskurn, hví er þá enn verið að ofsækja mig? Þá væri hneyksli krossins tekið burt. |
|
| 12 |
|
| Vel mættu þeir, sem koma yður í uppnám, aflima sig. |
|
| 13 |
|
| Þér voruð, bræður, kallaðir til frelsis. Notið aðeins ekki frelsið til færis fyrir holdið, heldur þjónið hver öðrum í kærleika. |
|
| 14 |
|
| Allt lögmálið er uppfyllt með þessu eina boðorði: “Þú skalt elska náunga þinn eins og sjálfan þig.” |
|
| 15 |
|
| En ef þér bítist og etið hver annan upp, þá gætið þess, að þér tortímist ekki hver fyrir öðrum. |
|
| 16 |
|
| En ég segi: Lifið í andanum, og þá fullnægið þér alls ekki girnd holdsins. |
|
| 17 |
|
| Holdið girnist gegn andanum, og andinn gegn holdinu. Þau standa hvort gegn öðru, til þess að þér gjörið ekki það, sem þér viljið. |
|
| 18 |
|
| En ef þér leiðist af andanum, þá eruð þér ekki undir lögmáli. |
|
| 19 |
|
| Holdsins verk eru augljós: Frillulífi, óhreinleiki, saurlífi, |
|
| 20 |
|
| skurðgoðadýrkun, fjölkynngi, fjandskapur, deilur, metingur, reiði, eigingirni, tvídrægni, flokkadráttur, |
|
| 21 |
|
| öfund, ofdrykkja, svall og annað þessu líkt. Og það segi ég yður fyrir, eins og ég hef áður sagt, að þeir, sem slíkt gjöra, munu ekki erfa Guðs ríki. |
|
| 22 |
|
| En ávöxtur andans er: Kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska, |
|
| 23 |
|
| hógværð og bindindi. Gegn slíku er lögmálið ekki. |
|
| 24 |
|
| En þeir, sem tilheyra Kristi Jesú, hafa krossfest holdið með ástríðum þess og girndum. |
|
| 25 |
|
| Fyrst andinn er líf vort skulum vér lifa í andanum! |
|
| 26 |
|
| Verum ekki hégómagjarnir, svo að vér áreitum hver annan og öfundum hver annan. |
|
|
|
|