|
| 1 |
|
| Þess vegna er það, að ég, Páll, bandingi Krists Jesú vegna yðar, heiðinna manna, beygi kné mín. |
|
| 2 |
|
| Víst hafið þér heyrt um þá ráðstöfun Guðs náðar, sem hann fól mér hjá yður: |
|
| 3 |
|
| Að birta mér með opinberun leyndardóminn. Ég hef stuttlega skrifað um það áður. |
|
| 4 |
|
| Þegar þér lesið það, getið þér skynjað, hvað ég veit um leyndardóm Krists. |
|
| 5 |
|
| Hann var ekki birtur mannanna sonum fyrr á tímum. Nú hefur hann verið opinberaður heilögum postulum hans og spámönnum í andanum: |
|
| 6 |
|
| Heiðingjarnir eru í Kristi Jesú fyrir fagnaðarerindið orðnir erfingjar með oss, einn líkami með oss, og eiga hlut í sama fyrirheiti og vér. |
|
| 7 |
|
| Ég varð þjónn þessa fagnaðarerindis, af því að Guð gaf mér gjöf náðar sinnar með krafti máttar síns. |
|
| 8 |
|
| Mér, sem minnstur er allra heilagra, var veitt sú náð að boða heiðingjunum fagnaðarerindið um hinn órannsakanlega ríkdóm Krists |
|
| 9 |
|
| og að upplýsa alla um það, hvernig Guð hefur ráðstafað þessum leyndardómi. Hann hefur frá eilífð verið hulinn í Guði, sem allt hefur skapað. |
|
| 10 |
|
| Nú skyldi kirkjan látin kunngjöra tignunum og völdunum í himinhæðum, hve margháttuð speki Guðs er. |
|
| 11 |
|
| Þetta er Guðs eilífa fyrirætlun, sem hann hefur framkvæmt í Kristi Jesú, Drottni vorum. |
|
| 12 |
|
| Á honum byggist djörfung vor. Í trúnni á hann eigum vér öruggan aðgang að Guði. |
|
| 13 |
|
| Fyrir því bið ég, að þér látið eigi hugfallast út af þrengingum mínum yðar vegna. Þær eru yður til vegsemdar. |
|
| 14 |
|
| Þess vegna beygi ég kné mín fyrir föðurnum, |
|
| 15 |
|
| sem hvert faðerni fær nafn af á himni og jörðu. |
|
| 16 |
|
| Megi hann gefa yður af ríkdómi dýrðar sinnar að styrkjast fyrir anda sinn að krafti hið innra með yður, |
|
| 17 |
|
| til þess að Kristur megi fyrir trúna búa í hjörtum yðar og þér verða rótfestir og grundvallaðir í kærleika. |
|
| 18 |
|
| Þá fáið þér ásamt öllum heilögum skilið, hve kærleikur Krists er víður og langur, hár og djúpur, og komist að raun um hann, |
|
| 19 |
|
| sem gnæfir yfir alla þekkingu, og náið að fyllast allri Guðs fyllingu. |
|
| 20 |
|
| En honum, sem í oss verkar með krafti sínum og megnar að gjöra langt fram yfir allt það, sem vér biðjum eða skynjum, |
|
| 21 |
|
| honum sé dýrð í kirkjunni og í Kristi Jesú um öll æviskeið, öld eftir öld. Amen. |
|
|
|
|