skaltu ekki hlusta á orð þessa spámanns eða draumamanns því að Drottinn, Guð ykkar, er að reyna ykkur til að komast að því hvort þið elskið Drottin, Guð ykkar, af öllu hjarta ykkar og allri sálu.
En spámanninn eða draumamanninn skal taka af lífi því að hann hefur hvatt til fráhvarfs frá Drottni, Guði ykkar, sem leiddi ykkur út úr Egyptalandi og keypti ykkur frjáls úr þrælahúsinu. Hann reyndi að tæla þig af þeim vegi sem Drottinn, Guð þinn, hefur boðið þér að ganga. Þú skalt eyða hinu illa þín á meðal.
Ef bróðir þinn sammæðra, sonur, dóttir, konan í faðmi þínum eða vinur, sem þú elskar eins og sjálfan þig, reynir á laun að leiða þig afvega með því að segja: „Við skulum þjóna öðrum guðum,“ sem hvorki þú né forfeður þínir hafa þekkt,
heldur skaltu taka hann af lífi. Þú skalt vera fyrstur til að leggja hönd á hann til að taka hann af lífi. Því næst skal allt fólkið leggja á hann hendur.
„Illmenni af þinni eigin þjóð hafa leitt íbúa borgarinnar afvega með því að segja: Við skulum fara og þjóna öðrum guðum sem þið hafið ekki þekkt áður.“
Þá skalt þú rannsaka þetta rækilega, spyrjast fyrir og grennslast eftir. Reynist þetta rétt og það sannast að þessi viðurstyggð hafi verið framin þín á meðal,
Öllu herfangi skaltu safna saman mitt á markaðstorgi borgarinnar. Því næst skaltu brenna borgina og allt herfangið í eldi sem alfórn handa Drottni, Guði þínum. Hún skal verða ævarandi rúst og aldrei verða endurreist
og ekkert af hinu bannfærða máttu taka til handargagns. Þá mun Drottinn láta af brennandi heift sinni og sýna þér miskunn. Þá mun hann aftur miskunna sig yfir þig og fjölga þér eins og hann hét forfeðrum þínum