Eftir þessum reglum skaltu fella niður skuldir: Sérhver lánardrottinn skal falla frá kröfum vegna láns sem hann hefur veitt náunga sínum. Hann skal ekki ganga eftir greiðslu hjá náunga sínum og meðbróður því að niðurfelling skulda hefur verið boðuð vegna Drottins.
Raunar á enginn þín á meðal að vera fátækur því að í landinu, sem Drottinn, Guð þinn, fær þér sem erfðaland og þú tekur til eignar, mun Drottinn blessa þig ríkulega
Því að Drottinn, Guð þinn, mun blessa þig eins og hann hét þér. Þá munt þú lána mörgum þjóðum en sjálfur ekki þurfa að taka lán og þú munt ríkja yfir mörgum þjóðum en engin mun ríkja yfir þér.
Ef einhver bræðra þinna er fátækur í einni af borgum þínum í landinu sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér skaltu ekki loka hendi þinni fyrir fátækum bróður þínum með harðýðgi
Gæt þess að hleypa ekki þessari ódrengilegu hugsun að: „Nú er skammt til sjöunda ársins þegar skuldir skulu felldar niður,“ og þú lítir þurfandi bróður þinn illu auga og gefir honum ekkert. Þá mun hann ákalla Drottin og ásaka þig og það verður þér til syndar.
Því að aldrei mun fátækra vant verða í landinu og þess vegna geri ég þér þetta að skyldu: Ljúktu upp hendi þinni fyrir meðbræðrum þínum, fátækum og þurfandi í landi þínu.
Þú skalt fá honum svo mikið sem hann getur borið af sauðahjörð þinni og þreskivelli og úr vínpressu þinni og gefa honum af öllu sem Drottinn, Guð þinn, hefur blessað þig með.
Taktu það ekki nærri þér að þurfa að senda hann frá þér frjálsan mann því að hann hefur unnið fyrir þig í sex ár fyrir jafngildi þess sem þú hefðir þurft að greiða kaupamanni. Og Drottinn mun blessa þig í öllu sem þú gerir.
Þú skalt helga Drottni, Guði þínum, alla karlkyns frumburði nautgripa þinna og sauðfjár. Þú skalt ekki hafa frumburði nauta þinna til vinnu og ekki rýja frumburði sauðfjár þíns.