Þegar Drottinn, Guð þinn, upprætir þjóðirnar sem búa í landinu sem Drottinn, Guð þinn, mun fá þér og þú hefur tekið eignir þeirra og ert sestur að í borgum þeirra og húsum,
Þú skalt stika út veginn að þeim og skipta landinu, sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér að erfðahlut, í þrennt til þess að hver sá sem orðið hefur öðrum að bana geti flúið til þessara borga.
Þetta skal gilda um þann sem hefur orðið manni að bana og flýr þangað til að bjarga lífi sínu. Hafi hann óviljandi orðið öðrum að bana og án þess að hafa áður verið óvinur hans,
svo sem þegar maður fer við annan mann út í skóg til að fella tré, reiðir upp öxina til að höggva tréð en hún gengur af skaftinu og lendir á náunga hans svo að hann fær bana af, getur sá maður flúið til einhverrar þessara borga til að bjarga lífi sínu.
Leiðin til griðaborgarinnar má ekki vera of löng svo að hefnandi, sem eltir veganda, geti náð honum og drepið hann, knúinn hefndarþorsta, þótt banamaðurinn sé ekki dauðasekur enda ekki óvinur hans áður.
þar sem þú heldur öll boðorðin sem ég set þér í dag, framfylgir þeim með því að elska Drottin, Guð þinn, og ganga á hans vegum alla ævi, þá skaltu enn bæta þremur borgum við þessar þrjár.
Þú skalt ekki færa úr stað landamerki nágranna þíns sem forfeðurnir hafa sett í erfðalandi þínu sem kemur í hlut þinn í landinu sem Drottinn, Guð þinn, fær þér til eignar.
Ekki nægir eitt vitni á móti neinum þeim sem sakaður er um afbrot eða glæp, hvert svo sem brotið er. Því aðeins skal framburður gilda að tvö eða þrjú vitni beri.