Nú gengur maður að eiga konu. Falli hún honum ekki í geð af því að hann finnur eitthvað fráhrindandi við hana skrifar hann henni skilnaðarbréf, fær henni og sendir hana af heimili sínu.
má fyrri maður hennar, sem sendi hana frá sér, ekki taka hana aftur sér að eiginkonu því að hún er saurguð orðin. Slíkt mundi Drottni viðurstyggð og þú skalt ekki leiða sök yfir landið sem Drottinn, Guð þinn, fær þér að erfðahlut.
Þegar maður er nýkvæntur á hann ekki að gegna herþjónustu og engar slíkar kvaðir skulu á hann lagðar. Skal hann laus undan þeim í eitt ár til gagns fyrir heimili sitt og eiginkonu hans til ánægju.
Verði uppvíst að maður hafi rænt einhverjum bræðra sinna, einhverjum Ísraelsmanni, og farið með hann eins og þræl og selt hann, þá skal sá ræningi deyja. Þú skalt uppræta hið illa þín á meðal.
Vertu varkár gagnvart holdsveiki. Gættu þess vandlega að fara eftir öllu sem Levítaprestarnir mæla fyrir um. Þið skuluð fara nákvæmlega eftir því sem ég hef gefið þeim fyrirmæli um.
heldur skaltu fá honum veð hans aftur um sólarlagsbil svo að hann geti lagst til svefns í yfirhöfn sinni og hann blessi þig og það mun reiknast þér til réttlætis fyrir augliti Drottins, Guðs þíns.
Þú skalt ekki halda launum fyrir fátækum og þurfandi daglaunamanni, hvort heldur hann er einn af bræðrum þínum eða aðkomumönnum í landi þínu, í einhverri af borgum þínum.
Þú skalt greiða honum kaup sitt samdægurs áður en sól er sest, því að hann er fátækur og þarf mjög á því að halda, svo að hann hrópi ekki til Drottins að þú verðir sekur um synd.
Þegar þú hirðir uppskeruna á akri þínum og gleymir einu kornknippi á akrinum skaltu ekki snúa aftur til að sækja það. Það mega aðkomumaðurinn, munaðarleysinginn og ekkjan fá til þess að Drottinn, Guð þinn, blessi þig í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur.
Þegar þú hefur hrist ávextina af ólífutrjám þínum skaltu ekki gera eftirleit í greinum trjánna. Það sem eftir er mega aðkomumaðurinn, munaðarleysinginn og ekkjan fá.