Þegar allt þetta, blessunin og bölvunin sem ég hef lagt fyrir þig í dag, er yfir þig komið og þú minnist þeirra orða á meðal allra þeirra þjóða sem Drottinn, Guð þinn, hrekur þig til,
þá mun Drottinn, Guð þinn, snúa við högum þínum. Hann mun sýna þér miskunn og safna þér saman frá öllum þeim þjóðum sem Drottinn, Guð þinn, hafði dreift þér á meðal.
Og Drottinn, Guð þinn, mun leiða þig aftur inn í landið sem forfeður þínir tóku til eignar. Þú munt taka það til eignar og hann mun láta þér farnast betur og gera þig fjölmennari en forfeður þína.
Drottinn, Guð þinn, mun umskera hjarta þitt og hjarta niðja þinna svo að þú elskir Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu og allri sálu þinni svo að þú lifir.
Og Drottinn, Guð þinn, mun veita þér ríkulega í öllu sem þú tekur þér fyrir hendur og í ávexti kviðar þíns, í ávexti búfjár þíns og í ávexti lands þíns því að Drottinn mun aftur gleðjast yfir þér, þér til heilla, eins og hann gladdist yfir forfeðrum þínum
ef þú hlýðir boði Drottins, Guðs þíns, að halda fyrirmæli hans og lög sem skráð eru á þessa lögbók og ef þú snýrð aftur til Drottins, Guðs þíns, af öllu hjarta þínu og allri sálu þinni.
Það er ekki uppi í himninum svo að þú þurfir að spyrja: „Hver vill stíga upp í himininn og sækja það og kunngjöra okkur það svo að við getum framfylgt því?“
Það er ekki heldur handan hafsins svo að þú þurfir að spyrja: „Hver vill fara yfir hafið fyrir okkur og sækja það og kunngjöra okkur það svo að við getum framfylgt því?“
Ef þú hlýðir boðum Drottins, sem ég set þér í dag, með því að elska Drottin, Guð þinn, ganga á vegum hans og halda boð hans, ákvæði og lög, munt þú lifa og þér mun fjölga og Drottinn, Guð þinn, mun blessa þig í landinu sem þú heldur nú inn í til að taka það til eignar.
Ég kveð bæði himin og jörð til vitnis gegn ykkur í dag: Ég hef lagt fyrir þig líf og dauða, blessun og bölvun. Veldu þá lífið svo að þú og niðjar þínir megið lifa
með því að elska Drottin, Guð þinn, hlýða boði hans og halda þér fast við hann því að þá muntu lifa og verða langlífur í landinu sem Drottinn hét að gefa feðrum þínum, Abraham, Ísak og Jakobi.