Biblían 2007
|
| 1 |
| Síðan gekk Móse frá Móabssléttu og á Nebófjall, upp á Pisgatind gegnt Jeríkó, og Drottinn sýndi honum allt landið: Gíleað allt til Dan, |
| 2 |
| allt Naftalí, Efraímsland og Manasse, allt land Júda vestur að Miðjarðarhafi, |
| 3 |
| Negeb og Jórdanardalinn, dalinn við Jeríkó, pálmaborgina allt til Sóar. |
| 4 |
| Síðan sagði Drottinn við hann: „Þetta er landið sem ég hét Abraham, Ísak og Jakobi er ég sagði: Niðjum þínum gef ég það. Ég hef leyft þér að sjá það með eigin augum en þú munt ekki komast þangað yfir um.“ |
| 5 |
| Móse, þjónn Drottins, andaðist þar í Móabslandi eins og Drottinn hafði sagt. |
| 6 |
| Hann gróf hann í dalnum í Móabslandi gegnt Bet Peór. Enginn veit enn þann dag í dag hvar gröf hans er. |
| 7 |
| Móse var hundrað og tuttugu ára þegar hann lést. Sjón hans hafði ekki daprast né heldur hafði þróttur hans þorrið. |
| 8 |
| Ísraelsmenn syrgðu Móse á Móabssléttu í þrjátíu daga. Þá lauk sorgartímanum eftir Móse. |
| 9 |
| Jósúa Núnsson var fullur vísdómsanda því að Móse hafði lagt hendur sínar yfir hann. Ísraelsmenn hlýddu honum og breyttu eftir því sem Drottinn hafði boðið Móse. |
| 10 |
| Annar eins spámaður og Móse kom aldrei aftur fram í Ísrael. Drottinn umgekkst hann augliti til auglitis. |
| 11 |
| Minnist táknanna og stórmerkjanna sem Drottinn sendi hann til að gera í Egyptalandi gegn faraó, hirðmönnum hans og öllu landi hans. |
| 12 |
| Hafið í huga allt sem hann vann með sinni sterku hendi, öll hin miklu og ógnvekjandi verk sem Móse vann í augsýn alls Ísraels. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/deuteronomy/034.mp3
34
34