Biblían 1981
|
| 1 |
| Og Móse gekk neðan af Móabsheiðum upp á Nebófjall, Pisgatind, sem er gegnt Jeríkó. Þaðan sýndi Drottinn honum gjörvallt landið: Gíleað allt til Dan, |
| 2 |
| allt Naftalí og Efraímsland og Manasse, og allt Júdaland allt til vesturhafsins, |
| 3 |
| og Suðurlandið og Jórdan-sléttlendið, dalinn hjá Jeríkó, pálmaborginni, allt til Sóar. |
| 4 |
| Og Drottinn sagði við hann: “Þetta er landið, sem ég sór Abraham, Ísak og Jakob, er ég sagði: ‘Niðjum þínum vil ég gefa það!’ Ég hefi látið þig líta það eigin augum, en yfir um þangað skalt þú ekki komast.” |
| 5 |
| Móse, þjónn Drottins, dó þar í Móabslandi, eins og Drottinn hafði sagt, |
| 6 |
| og hann var grafinn í dalnum í Móabslandi, gegnt Bet Peór, en enginn maður veit enn til þessa dags, hvar gröf hans er. |
| 7 |
| Og Móse var hundrað og tuttugu ára gamall, er hann andaðist. Eigi glapnaði honum sýn, og eigi þvarr þróttur hans. |
| 8 |
| Ísraelsmenn grétu Móse á Móabsheiðum í þrjátíu daga, þá enduðu sorgargrátsdagarnir eftir Móse. |
| 9 |
| En Jósúa Núnsson var fullur vísdómsanda, því að Móse hafði lagt hendur sínar yfir hann, og Ísraelsmenn hlýddu honum og gjörðu svo sem Drottinn hafði boðið Móse. |
| 10 |
| En eigi reis framar upp í Ísrael annar eins spámaður og Móse, er Drottinn umgekkst augliti til auglitis, |
| 11 |
| þegar litið er til allra þeirra tákna og undra, er Drottinn hafði sent hann til að gjöra í Egyptalandi á Faraó og öllum þjónum hans og öllu landi hans, |
| 12 |
| og þegar litið er til alls hins volduga máttar og allra hinna miklu og hræðilegu verka, er Móse gjörði í augsýn alls Ísraels. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/deuteronomy/034.mp3
34
34