Biblían 2007
|
| 1 |
| Páll, Silvanus og Tímóteus heilsa söfnuði Þessaloníkumanna sem er í Guði föður og Drottni Jesú Kristi. Náð sé með yður og friður. |
| 2 |
| Ég þakka ávallt Guði fyrir ykkur öll er ég minnist ykkar í bænum mínum. |
| 3 |
| Ég minnist stöðugt fyrir augliti Guðs vors og föður hve mikið þið starfið í trúnni, stríðið í kærleikanum og eruð staðföst í voninni á Drottin vorn Jesú Krist. |
| 4 |
| Guð elskar ykkur, systkin. Ég veit að hann hefur útvalið ykkur. |
| 5 |
| Fagnaðarerindi mitt kom ekki til ykkar í orðum einum heldur í krafti og heilögum anda með fyllstu sannfæringu. Eins vitið þið hverju ég kom til vegar ykkar vegna. |
| 6 |
| Þið hafið gerst eftirbreytendur mínir og Drottins. |
| 7 |
| Þrátt fyrir mikla þrengingu tókuð þið á móti orðinu með fögnuði sem heilagur andi gefur. Þannig eruð þið orðin fyrirmynd öllum trúuðum í Makedóníu og í Akkeu. |
| 8 |
| Frá ykkur hefur orð Drottins hljómað, ekki einungis í Makedóníu og Akkeu, heldur er trú ykkar á Guð kunn orðin alls staðar. Um það þarf ég ekki að fjölyrða. |
| 9 |
| Allir segja frá því á hvern hátt ég kom til ykkar og hvernig þið sneruð ykkur til Guðs frá skurðgoðunum til þess að þjóna lifandi og sönnum Guði, |
| 10 |
| og hvernig þið væntið nú sonar hans, frá himnum, Jesú, sem Guð vakti upp frá dauðum og mun frelsa okkur frá hinni komandi reiði. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/1thessalonians/001.mp3
5
1