En við sem trú höfum tekið göngum inn til hvíldarinnar eins og hann hefur sagt: „Og ég sór í bræði minni: Eigi skulu þeir inn ganga til hvíldar minnar.“ Þó voru verk Guðs fullger frá grundvöllun heims.
Því ákveður Guð aftur dag einn er hann segir löngu síðar fyrir munn Davíðs: „Í dag.“ Eins og fyrr hefur sagt verið: „Ef þér heyrið raust hans í dag, þá forherðið ekki hjörtu yðar.“
Því að orð Guðs er lifandi og kröftugt og beittara hverju tvíeggjuðu sverði og smýgur inn í innstu fylgsni sálar og anda, liðamóta og mergjar, það dæmir hugsanir og hugrenningar hjartans.