Melkísedek þessi var konungur í Salem og prestur Guðs Hins hæsta. Hann gekk á móti Abraham og blessaði hann þegar hann sneri heimleiðis eftir að hafa unnið sigur á konungunum.
Og Abraham lét honum í té tíund af öllu. Í fyrsta lagi þýðir nafn Melkísedeks „réttlætiskonungur“ en hann heitir enn fremur Salemkonungur, það er „friðarkonungur“.
Þess er ekki getið hver faðir hans, móðir eða forfeður hans voru, hvenær hann fæddist og hvenær hann dó. Hann er líkur syni Guðs, hann heldur áfram að vera prestur um aldur.
Og víst er um það að þeim Levísonum, er fá prestdóminn, er boðið að taka tíund af lýðnum eftir lögmálinu, það er að segja af bræðrum sínum, enda þótt þeir séu komnir af Abraham.
Fyrirmæli um presta eru grundvölluð í lögmálinu sem lýðurinn fékk. Hefði nú fullkomnun fengist með levíska prestdóminum, hver var þá framar þörf þess að segja að koma skyldi annars konar prestur að hætti Melkísedeks en ekki að hætti Arons?
Hann þarf ekki daglega, eins og hinir æðstu prestarnir, fyrst að bera fram fórnir fyrir eigin syndir, síðan fyrir syndir lýðsins. Það gerði hann í eitt skipti fyrir öll er hann fórnfærði sjálfum sér.