Sérhver æðsti prestur er skipaður til þess að bera fram bæði gjafir og fórnir. Þess vegna er nauðsynlegt að þessi æðsti prestur hafi líka eitthvað fram að bera.
En tjaldbúðin þar sem þeir þjóna er eftirlíking og skuggi hinnar himnesku, eins og Móse fékk bendingu um frá Guði er hann var að koma upp tjaldbúðinni: „Gæt þess,“ segir hann, „að þú gerir allt eftir þeirri fyrirmynd sem þér var sýnd á fjallinu.“
Hann verður ekki eins og sáttmálinn sem ég gerði við feður þeirra á þeim degi þegar ég tók í hönd þeirra og leiddi þá út úr Egyptalandi því að þeir rufu sáttmála minn og ég hirti eigi um þá, segir Drottinn.
Þannig er sáttmálinn sem ég mun gera við Ísraelsmenn þegar þessir dagar eru liðnir, segir Drottinn: Ég mun leggja lög mín í hugskot þeirra og rita þau á hjörtu þeirra. Ég mun vera Guð þeirra og þeir vera fólk mitt.
Þar sem hann nú kallar þetta nýjan sáttmála þá hefur hann lýst hinn fyrri úreltan. En það sem er að úreldast og fyrnast er að því komið að verða að engu.