Þar var reykelsisaltari úr gulli og sáttmálsörkin sem öll var gulli búin. Í henni var gullkerið með manna í, stafur Arons sem laufgast hafði og sáttmálsspjöldin.
Inn í hina innri gengur æðsti presturinn einn, einu sinni á ári, ekki án fórnarblóðs. Það ber hann fram vegna sjálfs sín og fyrir syndir sem fólkið hefur drýgt af vangá.
Hún er ímynd þess tíma sem nú er. Hér eru fram bornar gjafir og fórnir sem megna ekki að færa þeim sem innir þjónustuna af hendi vissu um að vera fullkominn.
En Kristur er kominn sem æðsti prestur þeirra gæða sem komin eru. Hann gekk inn í gegnum hina stærri og fullkomnari tjaldbúð sem ekki er með höndum gerð, það er að segja er ekki af þessari sköpun.
Hve miklu fremur mun þá blóð Krists, þegar hann hefur í krafti eilífs anda borið sjálfan sig fram fyrir Guð sem lýtalausa fórn, hreinsa samvisku okkar af dauðum verkum svo að við getum þjónað lifanda Guði.
Þess vegna er hann meðalgangari nýs sáttmála. Hann dó og bætti að fullu fyrir afbrotin undir fyrri sáttmálanum til þess að þau sem Guð hafði kallað mættu öðlast hina eilífu arfleifð sem heitið var.
Þegar Móse hafði kunngjört gjörvöllum lýðnum öll boðorð lögmálsins, þá tók hann blóð kálfanna og hafranna, ásamt vatni og skarlatsrauðri ull og ísópi, og stökkti bæði á sjálfa bókina og allan lýðinn
Það var því óhjákvæmilegt að eftirmyndir þeirra hluta sem á himnum eru yrðu hreinsaðar með slíkum hætti. En sjálft hið himneska krefst betri fórna en þessara.
Því að Kristur gekk ekki inn í helgidóm höndum gerðan, eftirmynd hins sanna helgidóms, heldur inn í sjálfan himininn, til þess að birtast nú fyrir augliti Guðs okkar vegna.
Þá hefði hann oft þurft að líða frá grundvöllun heims. En nú hefur hann birst í eitt skipti fyrir öll við endi aldanna til að afmá syndina með fórn sinni.
þannig var Kristi fórnfært í eitt skipti til þess að bera syndir margra, og aftur mun hann birtast, ekki sem syndafórn heldur til að frelsa þá sem bíða hans.