Adónísedek, konungur í Jerúsalem, frétti að Jósúa hefði tekið Aí og helgað hana banni. Hann hefði farið með Aí og konung hennar eins og Jeríkóborg og konung hennar og að íbúar Gíbeonborgar hefðu samið frið við Ísrael og byggju meðal þeirra.
Hann og þjóð hans urðu skelfingu lostin því að Gíbeon var stór borg, jafnstór og ein af konungsborgunum. Hún var stærri en Aí og allir karlmenn í borginni reyndir hermenn.
Adónísedek, konungur í Jerúsalem, sendi því menn til Hóhams, konungs í Hebron, Píreams, konungs í Jarmút, Jafía, konungs í Lakís og til Debírs, konungs í Eglon, með þessi boð:
Þá söfnuðust saman Amorítakonungarnir fimm, konungurinn í Jerúsalem, Hebron, Jarmút, Lakís og Eglon. Þeir og allir herir þeirra héldu upp til Gíbeon, settust um borgina og tóku að herja á hana.
Síðan sendu mennirnir í Gíbeon til Jósúa í herbúðunum í Gilgal og létu skila til hans: „Slepptu nú ekki hendinni af þjónum þínum. Skundaðu upp eftir til okkar, bjargaðu okkur og veittu okkur lið því að allir konungar Amoríta frá fjalllendinu hafa gert bandalag gegn okkur.“
Drottinn olli ringulreið meðal þeirra andspænis Ísrael svo að hann gersigraði þá við Gíbeon og rak flótta þeirra eftir stígnum upp til Bet Hóron og alveg til Aseka og Makkeda og hjó þá niður.
Á flóttanum undan Ísrael, er þeir voru á stígnum niður frá Bet Hóron, kastaði Drottinn sjálfur stórum steinum á þá af himni alla leiðina til Aseka og varð það þeirra bani. Haglgrýtið felldi fleiri en Ísraelsmenn felldu með sverði.
Á þessum degi, þegar Drottinn framseldi Amoríta fyrir augliti Ísraelsmanna, talaði Jósúa við Drottin og sagði við hann í návist Ísraelsmanna: Sól, statt þú kyrr yfir Gíbeon og þú, tungl, yfir Ajalondal.
Og sólin stóð kyrr og tunglið stöðvaðist uns þjóðin hafði hefnt sín á óvinum sínum. Þetta er skráð í Bók hins réttláta. Sólin stóð kyrr á miðjum himni og nær heill dagur leið þar til hún settist.
En standið ekki aðgerðalausir. Veitið óvinum ykkar eftirför og ráðist á bakverði þeirra. Látið þá ekki komast inn í borgir sínar því að Drottinn, Guð ykkar, hefur selt þá ykkur í hendur.“
Það var gert og konungarnir fimm, konungurinn í Jerúsalem, konungurinn í Hebron, konungurinn í Jarmút, konungurinn í Lakís og konungurinn í Eglon voru færðir til hans úr hellinum.
Þegar konungarnir höfðu verið leiddir fyrir Jósúa kallaði hann alla Ísraelsmenn saman og gaf foringjum hermannanna, sem farið höfðu með honum, þessi fyrirmæli: „Gangið fram og stígið fæti á háls þessara konunga.“ Þeir gengu þá fram og stigu fæti sínum á háls þeirra.
Þá sagði Jósúa við þá: „Óttist ekki og látið ekki hugfallast. Verið hraustir og djarfir. Þannig mun Drottinn fara með alla fjandmenn ykkar sem þið munuð berjast við.“
Um sólarlagsbil gaf Jósúa skipun um að taka þá ofan úr trjánum og fleygja þeim inn í hellinn sem þeir höfðu falið sig í. Því næst var stórum steinum komið fyrir í hellismunnanum og þar hafa þeir verið allt til þessa dags.
Þennan sama dag vann Jósúa Makkeda. Hann hjó íbúa hennar og konung með sverðseggjum. Hann helgaði borgina banni og allt lifandi í henni. Hann lét engan flóttamann sleppa og fór með konunginn í Makkeda eins og hann hafði farið með konunginn í Jeríkó.
Þá borg og konung hennar seldi Drottinn einnig Ísrael í hendur. Jósúa hjó niður alla sem í henni bjuggu, allt kvikt, með sverðseggjum. Hann lét engan flóttamann sleppa og fór með konung hennar eins og hann hafði farið með konunginn í Jeríkó.
Drottinn seldi Lakís Ísrael í hendur og vann Jósúa borgina á öðrum degi. Hann hjó alla íbúa borgarinnar með sverðseggjum og allt kvikt og fór með hana á sama hátt og hann hafði farið með Líbna.
og vann hana sama dag. Þeir felldu alla íbúa hennar með sverði og Jósúa helgaði allt lifandi í henni banni og fór með hana eins og hann hafði farið með Lakís.
og unnu hana. Jósúa felldi með sverðseggjum alla íbúa borgarinnar og konung hennar, allt lifandi í henni og í borgunum umhverfis Hebron, engan flóttamann létu þeir sleppa. Jósúa fór eins með borgina og hann hafði farið með Eglon, helgaði hana banni og alla sem í henni voru.
og vann hana og konung borgarinnar og allar borgirnar umhverfis. Hann felldi alla borgarbúa með sverðseggjum og helgaði alla sem í henni voru banni, allt lifandi í henni, og lét engan flóttamann komast undan. Jósúa fór með Debír og konung hennar eins og hann hafði farið með Hebron og konung hennar og Líbna og konung hennar.
Þannig lagði Jósúa allt landið undir sig, bæði fjalllendið og Suðurlandið Negeb, láglendið og hlíðarnar, og alla konunga þar. Hann lét engan flóttamann komast undan og helgaði allt lifandi banni, eins og Drottinn, Guð Ísraels, hafði boðið.