Þaðan liggja þau sunnan við Sporðdrekastíginn og til Sín, síðan upp á við sunnan við Kades Barnea, þá yfir til Hesrón, þaðan upp til Adar og í boga til Karka.
Síðan lágu landamærin upp frá Akordalnum til Debír og þaðan í norður til Gilgal gegnt stígnum til Adúmmím sem er sunnan við gilið. Þaðan lágu landamærin yfir að En-Semesvatni og þaðan í stefnu að Rógellind.
Þau lágu upp Hinnomssonardal sunnan við fjallsöxl Jebúsíta, það er Jerúsalem. Þaðan lágu þau upp á tind fjallsins sem er vestur af Hinnomssonardal við norðurenda Refaímsléttu.
Frá fjallstindinum sveigðu landamærin niður að Neftóalind og lágu þaðan til borganna á Efronfjalli. Þá sveigðu landamærin niður í átt til Baala, það er Kirjat Jearím.
Frá Baala sveigðu landamærin í vestur í átt að Seírfjalli, síðan yfir á norðuröxl Jearímfjalls, það er Kesalon, þaðan ofan til Bet Semes og þaðan yfir til Timna.
Jósúa fékk Kaleb Jefúnnesyni landspildu mitt á meðal Júdamanna, eins og Drottinn hafði boðið honum. Var það Kirjat Arba en Arba var faðir Anaks, það er Hebron.
Hún svaraði: „Blessaðu mig með gjöf. Þú gafst mig til hins skrælnaða Suðurlands, gefðu mér því brunna með vatni.“ Þá gaf Kaleb henni efri og neðri brunnana.
Þetta eru borgirnar á landsvæði ættbálks niðja Júda: Borgirnar á landi ættbálks Júdaniðja í Suðurlandinu við landamærin að Edóm voru þessar: Kabseel, Eder, Jagúr,
Maarat, Bet Anót og Eltekón, alls sex borgir og þorpin sem heyrðu þeim til. Tekóa, Efrata, það er Betlehem, Fagór Etam, Kúlon, Tatami, Sóres, Karem, Gallím, Baiter og Manókó, alls ellefu borgir og þorpin sem heyrðu þeim til.