Biblían 2007
|
| 1 |
| Eftir hlutkesti kom í hlut niðja Jósefs land sem liggur frá Jórdan við Jeríkó austur að vatninu við Jeríkó, inn í eyðimörkina og upp í fjalllendið til Betel. |
| 2 |
| Frá Betel lágu landamærin til Lús og þaðan yfir til lands Arkíta við Atarót, |
| 3 |
| þaðan ofan í vesturátt að landi Jafletíta og að landi Neðra-Bet Hóron og allt til Geser og þaðan til hafs. |
| 4 |
| Manasse og Efraím, synir Jósefs, fengu einnig erfðahlut. |
| 5 |
| Landsvæði niðja Efraíms, hverrar ættar fyrir sig, var sem hér segir: Landamæri erfðalands þeirra að austanverðu lágu frá Aterót Addar að Efra-Bet Hóron |
| 6 |
| og þaðan út til hafs. Frá Mikmetat í norðri sveigðu landamærin í austur til Taanat Síló og þaðan enn til austurs til Janóka. |
| 7 |
| Frá Janóka lágu landamærin ofan til Aterót og Naarat, síðan fast við Jeríkó og þaðan að Jórdan. |
| 8 |
| Frá Tappúa lágu landamærin í vestur að Kanagilinu og þaðan til hafs. Þetta var erfðaland niðja Efraíms, hverrar ættar fyrir sig. |
| 9 |
| Auk þess áttu þeir borgir sem aðgreindar voru fyrir þá í erfðalandi niðja Manasse, borgirnar sjálfar og þorpin sem heyrðu þeim til. |
| 10 |
| En Efraímítar gátu ekki hrakið Kanverjana sem bjuggu í Geser á brott. Þess vegna búa Kanverjar meðal Efraímsniðja allt til þessa dags og eru látnir vinna þrælkunarvinnu. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/joshua/016.mp3
24
16