Nú stefndi Jósúa öllum ættbálkum Ísraels saman í Síkem. Hann kvaddi til öldunga Ísraels, höfðingja hans, dómara og embættismenn og þeir gengu fram fyrir auglit Guðs.
Þá ávarpaði Jósúa allt fólkið: „Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Feður ykkar, þeir Tara, faðir Abrahams og Nahors, bjuggu í fyrndinni handan við Efrat og þjónuðu öðrum guðum.
Þá hrópuðu forfeður ykkar til Drottins um hjálp og hann lagði sorta milli ykkar og Egyptanna og steypti hafinu yfir þá svo að það huldi þá. Með eigin augum sáuð þið hvernig ég fór með Egypta. Því næst dvöldust þið lengi í eyðimörkinni
og ég leiddi ykkur til lands Amoríta sem bjuggu handan Jórdanar. Þeir réðust á ykkur en ég seldi þá ykkur í hendur. Þið tókuð land þeirra til eignar og ég tortímdi þeim fyrir ykkur.
Þá fóruð þið yfir Jórdan og komuð til Jeríkó. Höfðingjarnir í Jeríkó börðust gegn ykkur, einnig Amorítar, Peresítar, Kanverjar, Hetítar, Gírgasítar, Hevítar og Jebúsítar, en ég seldi þá ykkur í hendur.
Ég fékk ykkur land sem þið höfðuð ekkert haft fyrir og borgir, sem þið reistuð ekki en hafið sest að í, ég gaf ykkur víngarða og olíuviðarlundi sem þið hafið ekki plantað en lifið af.
En líki ykkur ekki að þjóna Drottni, kjósið þá í dag hverjum þið viljið þjóna, hvort heldur guðunum sem forfeður ykkar þjónuðu handan Efrat eða guðum Amoríta en í landi þeirra búið þið nú. En ég og mínir ættmenn munum þjóna Drottni.“
Drottinn er Guð okkar. Hann leiddi okkur og forfeður okkar frá Egyptalandi, úr þrælahúsinu. Það var hann sem gerði þessi miklu tákn fyrir augum okkar. Hann verndaði okkur á allri þeirri vegferð, sem við höfum lagt að baki, og fyrir öllum þeim þjóðum sem leið okkar lá meðal.
Og Drottinn rýmdi úr vegi okkar öllum þjóðunum, þeirra á meðal Amorítum sem bjuggu í landinu á undan okkur. Við munum einnig þjóna Drottni því að hann er Guð okkar.“
Ef þið yfirgefið Drottin og þjónið framandi guðum mun hann snúa baki við ykkur og senda böl yfir ykkur og tortíma ykkur þótt hann hafi áður reynst ykkur vel.“
Þá sagði Jósúa við fólkið: „Þið eruð vitni þess gegn sjálfum ykkur að þið hafið sjálf kosið að þjóna Drottni.“ Fólkið svaraði: „Já, við erum vitni þess.“
Síðan ávarpaði Jósúa allt fólkið: „Þessi steinn skal vera vitni gegn okkur því að hann hefur heyrt öll orðin sem Drottinn hefur talað til okkar. Hann skal vera vitni gegn ykkur svo að þið afneitið ekki Guði ykkar.“
Bein Jósefs, sem Ísraelsmenn höfðu flutt með sér frá Egyptalandi, voru grafin í Síkem á landspildunni sem Jakob keypti fyrir hundrað kesíta af sonum Hemors, föður Síkems, og varð erfðahluti niðja Jósefs.