Sjö prestar skulu bera sjö hafurshorn fyrir örkinni. Sjöunda daginn skuluð þið fara sjö sinnum umhverfis borgina og þá eiga prestarnir að þeyta hafurshornin.
Þegar hafurshornið kveður við og þið heyrið hornablásturinn skal allt fólkið æpa mikið heróp. Þá mun borgarmúrinn hrynja til grunna og þá skal hver og einn halda upp í borgina þaðan sem hann er staddur.“
Jósúa Núnsson kvaddi prestana til sín og sagði við þá: „Hefjið sáttmálsörkina upp. Sjö prestar skulu fara fyrir sáttmálsörk Drottins með sjö hafurshorn.“
Jósúa skipaði nú fólkinu: „Æpið ekki heróp, hefjið ekki raustina og mælið ekki orð af vörum fyrr en þann dag sem ég segi: Æpið heróp! Þá skuluð þið æpa heróp.“
Því næst lét hann örk Drottins fara umhverfis borgina. Þegar hún hafði farið einu sinni í kringum hana héldu þeir aftur til herbúðanna og voru þar um nóttina.
og prestarnir sjö, sem báru hafurshornin sjö á undan örkinni, þeyttu þau í sífellu. Herklæddir menn gengu á undan þeim en bakvarðarsveitin fylgdi örk Drottins. Hornin voru þeytt án afláts.
Sjöunda daginn fóru þeir á fætur þegar lýsti af degi og fóru sjö sinnum umhverfis borgina á sama hátt og áður. Aðeins þennan eina dag fóru þeir sjö sinnum umhverfis borgina.
Borgin og allt sem í henni er skal helgað banni, það tilheyrir Drottni. Aðeins skækjan Rahab og allir sem eru með henni í húsinu skulu lífi halda því að hún faldi mennina sem við sendum.
En forðist hið bannfærða. Ásælist hvorki né takið neitt af því sem hefur verið helgað banni því þá leiðið þið bann yfir herbúðir Ísraels og steypið þeim í glötun.
Nú æpti fólkið heróp og hafurshornin voru þeytt. Þegar fólkið heyrði hornablásturinn æpti það heróp mikið og borgarmúrinn hrundi til grunna. Fólkið fór þá inn í borgina, hver þar sem hann var staddur. Þannig unnu þeir borgina.
Þá fóru báðir ungu mennirnir sem höfðu njósnað og sóttu Rahab, föður hennar, móður og bræður og allt sem hún átti. Þeir sóttu öll skyldmenni hennar og fengu þeim dvalarstað utan herbúða Ísraels.
En Jósúa gaf skækjunni Rahab líf og fjölskyldu hennar og öllu sem hennar var. Hún hefur búið meðal Ísraelsmanna allt til þessa dags því að hún faldi mennina sem Jósúa sendi til að njósna um Jeríkó.
Þá sór Jósúa þennan eið: „Bölvaður sé hver sá frammi fyrir Drottni sem hefst handa um að endurreisa þessa borg, Jeríkó. Það skal kosta elsta son hans lífið að leggja grunn hennar og líf yngsta sonarins að setja hlið fyrir borgina.“