Þegar allir konungarnir vestan við Jórdan fréttu þetta, bæði þeir sem voru í fjalllendinu og þeir á láglendinu og með fram allri strönd hafsins mikla allt að Líbanon, konungar Hetíta, Amoríta, Kanverja, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta,
„Við, þjónar þínir,“ svöruðu þeir honum, „komum frá mjög fjarlægu landi vegna nafns Drottins, Guðs þíns, því að við höfum heyrt orðstír hans og um allt sem hann vann í Egyptalandi
Brauðið, sem við erum með, var enn volgt þegar við nestuðum okkur daginn sem við héldum að heiman til fundar við ykkur. En sjáið nú hve hart það er orðið og molnað.
Og þessir vínbelgir voru einnig nýir þegar við fylltum þá. En lítið nú á. Þeir eru sprungnir. Og yfirhafnir okkar og ilskór eru gatslitnir orðnir eftir þessa löngu ferð.“
En Ísraelsmenn felldu íbúana ekki því að leiðtogar safnaðar þeirra höfðu svarið þeim eið við Drottin, Guð Ísraels. Allur söfnuðurinn möglaði þess vegna gegn leiðtogunum
Því næst sögðu leiðtogarnir við þá: „Þeir skulu lífi halda.“ En síðan urðu Gíbeonítar skógarhöggsmenn og vatnsberar fyrir allan söfnuðinn eins og leiðtogarnir höfðu ákveðið.
Þeir svöruðu Jósúa: „Þjónum þínum var skilmerkilega greint frá því að Drottinn, Guð þinn, hefði lagt fyrir Móse, þjón sinn, að gefa ykkur allt landið og ryðja öllum íbúunum úr vegi. Þess vegna óttuðumst við um líf okkar sakir ykkar og þess vegna gerðum við þetta.
Á þeim degi gerði Jósúa þá að skógarhöggsmönnum og vatnsberum fyrir söfnuðinn og altari Drottins. Og það hafa þeir verið til þessa dags á staðnum sem Drottinn velur.