Biblían 2007
|
| 1 |
| Öldungana ykkar á meðal hvet ég sem einnig er öldungur og vottur písla Krists og einnig á hlutdeild í þeirri dýrð sem mun opinberast: |
| 2 |
| Verið hirðar þeirrar hjarðar sem Guð hefur falið ykkur. Gætið hennar ekki nauðugir heldur af fúsu geði eins og Guð vill, ekki af gróðafíkn heldur fúslega. |
| 3 |
| Þið skuluð ekki drottna yfir söfnuðunum heldur vera fyrirmynd hjarðarinnar. |
| 4 |
| Þegar hinn æðsti hirðir birtist munuð þið öðlast þann dýrðarsveig sem aldrei fölnar. |
| 5 |
| Og þið sem yngri eruð, verið öldungunum hlýðin og öll lítillát hvert gagnvart öðru því að „Guð stendur gegn dramblátum en auðmjúkum veitir hann náð“. |
| 6 |
| Beygið ykkur því undir Guðs voldugu hönd til þess að hann upphefji ykkur á sínum tíma. |
| 7 |
| Varpið allri áhyggju ykkar á hann því að hann ber umhyggju fyrir ykkur. |
| 8 |
| Verið algáð, vakið. Óvinur ykkar, djöfullinn, gengur um sem öskrandi ljón, leitandi að þeim sem hann getur tortímt. |
| 9 |
| Standið gegn honum stöðug í trúnni og vitið að bræður ykkar og systur um allan heim verða fyrir sömu þjáningum. |
| 10 |
| En er þið hafið þjáðst um lítinn tíma mun Guð, sem veitir alla náð og hefur í Kristi kallað ykkur til sinnar eilífu dýrðar, sjálfur fullkomna ykkur, styrkja og gera ykkur öflug. |
| 11 |
| Hans er mátturinn um aldir alda. Amen. |
| 12 |
| Ég hef látið Silvanus, sem er trúr bróðir í mínum augum, skrifa þetta stutta bréf til þess að hvetja ykkur og vitna hátíðlega að þetta er hin sanna náð Guðs. Standið stöðug í henni. |
| 13 |
| Söfnuðurinn í Babýlon, útvalinn eins og þið, og Markús, sonur minn, heilsa ykkur. |
| 14 |
| Heilsið hvert öðru með kærleikskossi. Friður sé með yður öllum sem eruð í Kristi. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/1peter/005.mp3
5
5