Það reyni ég með því að rifja upp fyrir ykkur þau orð, sem heilagir spámenn hafa áður talað, og boðorð Drottins vors og frelsara er postular ykkar hafa flutt.
Eins ætlar Guð með sama orði að eyða með eldi himnunum sem nú eru ásamt jörðinni. Hann mun varðveita þá til þess dags er óguðlegir menn verða dæmdir og tortímast.
Ekki er Drottinn seinn á sér með fyrirheitið þótt sumir álíti það seinlæti, heldur er hann langlyndur við ykkur þar eð hann vill ekki að neinn glatist heldur að allir komist til iðrunar.
En dagur Drottins mun koma sem þjófur og þá munu himnarnir líða undir lok með miklum gný, frumefnin sundurleysast í brennandi hita og jörðin og þau verk, sem á henni eru, upp brenna.
Álítið langlyndi Drottins vors vera hjálpræðisleið. Þetta er það sem hinn elskaði bróðir okkar, Páll, hefur ritað ykkur eftir þeirri speki sem honum er gefin.
Það gerir hann líka í öllum bréfum sínum þegar hann talar um þetta. En í þeim er sumt þungskilið er fáfróðir og staðfestulausir menn rangtúlka, eins og aðrar ritningar, sjálfum sér til tortímingar.
Fyrst þið vitið þetta fyrir fram, þið elskuðu, þá hafið gát á ykkur að þið látið eigi dragast með af villu þverbrotinna manna og fallið frá staðfestu ykkar.