Biblían 2007
|
| 1 |
| Einn af englunum sjö, sem halda á skálunum sjö, kom til mín og sagði: „Kom hingað og ég mun sýna þér hvernig skækjunni miklu verður refsað, borginni sem liggur við vötnin mörgu. |
| 2 |
| Konungar jarðarinnar hafa drýgt saurlifnað með henni og þeir sem á jörðunni búa hafa orðið drukknir af lostaveigum hennar.“ |
| 3 |
| Og andinn kom yfir mig og engillinn leiddi mig út í eyðimörk. Þar sá ég konu sitja á skarlatsrauðu dýri, alsettu guðlöstunar nöfnum og hafði það sjö höfuð og tíu horn. |
| 4 |
| Konan var klædd í purpura og skarlat og skrýdd gulli, gimsteinum og perlum. Hún hafði í hendi sér gullbikar, fullan af viðurstyggð og óhreinindum af saurlifnaði hennar. |
| 5 |
| Og á enni hennar var ritað nafn, leyndardómur: Babýlon hin mikla, móðir alls saurlifnaðar og svívirðu á jörðunni. |
| 6 |
| Og ég sá að konan var drukkin af blóði hinna heilögu og af blóði votta Jesú. Og ég undraðist stórlega er ég leit hana. |
| 7 |
| Og engillinn sagði við mig: „Hví ertu forviða? Ég mun segja þér leyndardóm konunnar og dýrsins með höfuðin sjö og hornin tíu sem ber hana: |
| 8 |
| Dýrið, sem þú sást, var, en er ekki, og það mun stíga upp frá undirdjúpinu og fara til glötunar. Og þeir sem á jörðu búa og eiga ekki frá grundvöllun veraldar nöfn sín skráð í lífsins bók munu undrast er þeir sjá dýrið sem var og er ekki og kemur aftur. |
| 9 |
| Hér reynir á skilning og speki. Höfuðin sjö eru sjö fjöll sem konan situr á. Það eru líka sjö konungar. |
| 10 |
| Fimm eru fallnir, einn er nú uppi, annar er ókominn og er hann kemur á hann að vera stutt. |
| 11 |
| Og dýrið, sem var en er ekki, er einmitt hinn áttundi og er af þeim sjö og fer til glötunar. |
| 12 |
| Og hornin tíu, sem þú sást, eru tíu konungar sem enn hafa eigi tekið við ríki heldur fá vald sem konungar eina stund ásamt dýrinu. |
| 13 |
| Þessir hafa allir eitt ráð og ljá dýrinu mátt sinn og vald. |
| 14 |
| Þessir munu heyja stríð við lambið. Og lambið og þeir sem með því eru, hinir kölluðu og útvöldu og trúu, munu sigra þá − því að lambið er Drottinn drottna og konungur konunga.“ |
| 15 |
| Og engillinn segir við mig: „Vötnin, sem þú sást, þar sem skækjan situr, eru lýðir og fólk, þjóðir og tungur. |
| 16 |
| Og hornin tíu, sem þú sást, og dýrið munu hata skækjuna og svipta hana öllu og skilja hana eftir nakta. Þau munu eta hold hennar og brenna hana í eldi |
| 17 |
| því að Guð hefur lagt þeim í brjóst að gera vilja sinn og vera ásátt um að fela dýrinu að ráða ríkjum, allt til þess er orð Guðs koma fram. |
| 18 |
| Og konan, sem þú sást, er borgin mikla sem ríkir yfir konungum jarðarinnar.“ |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/revelation/017.mp3
22
17