Biblían 1981
|
| 1 |
| Og hann sýndi mér móðu lífsvatnsins, skínandi sem kristall. Hún rann frá hásæti Guðs og lambsins. |
| 2 |
| Á miðju stræti borgarinnar, beggja vegna móðunnar, var lífsins tré, sem ber tólf sinnum ávöxt. Á mánuði hverjum gefur það ávöxt sinn, og blöð trésins eru til lækningar þjóðunum. |
| 3 |
| Og engin bölvun mun framar til vera. Og hásæti Guðs og lambsins mun í borginni vera og þjónar hans munu honum þjóna. |
| 4 |
| Þeir munu sjá ásjónu hans og nafn hans mun vera á ennum þeirra. |
| 5 |
| Og nótt mun ekki framar til vera og þeir þurfa ekki lampaljós né sólarljós, því að Drottinn Guð skín á þá og þeir munu ríkja um aldir alda. |
| 6 |
| Og hann sagði við mig: “Þessi orð eru trú og sönn. Og Drottinn, Guð anda spámannanna, sendi engil sinn til að sýna þjónum sínum það, sem verða á innan skamms. |
| 7 |
| Sjá, ég kem skjótt. Sæll er sá, sem varðveitir spádómsorð þessarar bókar.” |
| 8 |
| Og ég, Jóhannes, er sá sem heyrði og sá þetta. Og er ég hafði heyrt það og séð, féll ég niður til að tilbiðja fyrir fótum engilsins, sem sýndi mér þetta. |
| 9 |
| Og hann segir við mig: “Varastu þetta! Ég er samþjónn þinn og bræðra þinna, spámannanna, og þeirra, sem varðveita orð þessarar bókar. Tilbið þú Guð.” |
| 10 |
| Og hann segir við mig: “Innsigla þú ekki spádómsorð þessarar bókar, því að tíminn er í nánd. |
| 11 |
| Hinn rangláti haldi áfram að fremja ranglæti og hinn saurugi saurgi sig áfram og hinn réttláti stundi áfram réttlæti og hinn heilagi helgist áfram. |
| 12 |
| Sjá, ég kem skjótt, og launin hef ég með mér, til að gjalda hverjum og einum eins og verk hans er. |
| 13 |
| Ég er Alfa og Ómega, hinn fyrsti og hinn síðasti, upphafið og endirinn. |
| 14 |
| Sælir eru þeir, sem þvo skikkjur sínar. Þeir fá aðgang að lífsins tré og mega ganga um hliðin inn í borgina. |
| 15 |
| Úti gista hundarnir og töframennirnir og frillulífismennirnir og manndrápararnir og skurðgoðadýrkendurnir og hver sem elskar og iðkar lygi. |
| 16 |
| Ég, Jesús, hef sent engil minn til að votta fyrir yður þessa hluti í söfnuðunum. Ég er rótarkvistur af kyni Davíðs, stjarnan skínandi, morgunstjarnan.” |
| 17 |
| Og andinn og brúðurin segja: “Kom þú!” Og sá sem heyrir segi: “Kom þú!” Og sá sem þyrstur er, hann komi. Hver sem vill, hann fær ókeypis lífsins vatn. |
| 18 |
| Ég votta fyrir hverjum þeim manni, sem heyrir spádómsorð þessarar bókar, að leggi nokkur við þau, mun Guð á hann leggja þær plágur, sem um er ritað í þessari bók. |
| 19 |
| Og taki nokkur burt nokkuð af orðum spádómsbókar þessarar, þá mun Guð burt taka hlut hans í tré lífsins og í borginni helgu, sem um er ritað í þessari bók. |
| 20 |
| Sá sem þetta vottar segir: “Já, ég kem skjótt.” Amen. Kom þú, Drottinn Jesús! |
| 21 |
| Náðin Drottins Jesú sé með öllum. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/revelation/022.mp3
22
22