Engli safnaðarins í Sardes skaltu rita: Þetta segir sá sem hefur þá sjö anda Guðs, stjörnurnar sjö. Ég þekki verkin þín. Þú lifir að nafninu til en ert samt dauður.
Minnst þú þess sem þú hefur numið og heyrt og varðveit það og bæt ráð þitt. Ef þú vakir ekki mun ég koma eins og þjófur og þú munt alls ekki vita á hverri stundu ég kem yfir þig.
Sá er sigrar skal þá skrýðast hvítum klæðum og eigi mun ég afmá nafn hans úr bók lífsins. Ég mun kannast við nafn hans frammi fyrir föður mínum og englum hans.
Engli safnaðarins í Fíladelfíu skaltu rita: Þetta segir sá heilagi, sá sanni sem hefur lykil Davíðs, hann sem lýkur upp svo að enginn læsir og læsir svo að enginn lýkur upp.
Ég þekki verkin þín. Ég hef látið dyr standa opnar fyrir þér sem enginn getur lokað. Þú hefur lítinn mátt en hefur þó varðveitt orð mitt og ekki afneitað mér.
Ég skal láta lygarana af samkundu Satans, sem segjast vera Gyðingar en eru það ekki, koma og kasta sér fyrir fætur þér og láta þá vita að ég elska þig.
Af því að þú hefur varðveitt orð mitt um þolgæði mun ég varðveita þig á þeirri reynslustund sem á að koma yfir alla heimsbyggðina til að reyna þau sem á jörðinni búa.
Þann er sigrar mun ég gera að máttarstólpa í musteri Guðs míns og hann skal aldrei framar fara þaðan. Á hann mun ég rita nafn Guðs míns og nafn borgar Guðs míns, hinnar nýju Jerúsalem, er kemur af himni ofan frá Guði mínum, og nafnið mitt hið nýja.
Ég ræð þér að þú kaupir af mér gull, skírt í eldi, til þess að þú verðir auðugur, og hvít klæði til þess að þú getir hulið skammarlega nekt þína. Kauptu líka smyrsl á augu þín til þess að þú getir séð.
Ég stend við dyrnar og kný á. Ef einhver heyrir raust mína og lýkur upp dyrunum mun ég fara inn til hans og neyta kvöldverðar með honum og hann með mér.