Eftir þetta sá ég fjóra engla er stóðu á fjórum skautum jarðarinnar. Þeir héldu fjórum vindum jarðarinnar svo að vindur næði hvorki að blása yfir jörðina né hafið né yfir nokkurt tré.
Og ég sá annan engil stíga upp í austri. Hann hélt á innsigli lifanda Guðs og hrópaði hárri röddu til englanna fjögurra, sem fengið höfðu vald til að granda jörðunni og hafinu,
Og ég heyrði hve margir menn höfðu verið merktir innsigli Guðs. Hundrað fjörutíu og fjórar þúsundir voru merktar innsigli af öllum ættkvíslum Ísraelsmanna.
Eftir þetta sá ég, og sjá: Mikill múgur, sem enginn gat tölu á komið, af öllum þjóðum og kynkvíslum, lýðum og tungum, stóð frammi fyrir hásætinu og frammi fyrir lambinu, skrýddur hvítum skikkjum og hafði pálmagreinar í höndum.
Og ég sagði við hann: „Herra minn, þú veist það.“ Hann sagði við mig: „Þetta eru þeir sem komnir eru úr þrengingunni miklu og hafa hvítþvegið skikkjur sínar í blóði lambsins.