Biblían 2007
|
| 1 |
| Að nokkrum tíma liðnum kom Samson um hveitiuppskerutímann að vitja konu sinnar og hafði með sér kiðling. Hann sagði við föður hennar: „Hleyptu mér inn í afhýsið til konu minnar.“ En faðir hennar vildi ekki hleypa honum þangað inn. |
| 2 |
| Faðir hennar sagði: „Ég var þess fullviss að þú hefðir fengið megna óbeit á henni og gifti hana því brúðarsveini þínum. Yngri systir hennar er fríðari en hún, hana skaltu fá í hennar stað.“ |
| 3 |
| Þá sagði Samson: „Nú geta Filistear ekki ásakað mig þótt ég vinni þeim mein.“ |
| 4 |
| Síðan fór Samson og veiddi þrjú hundruð refi, tók blys, lét skottin á þeim vísa saman og batt eitt blys á hver tvö skott. |
| 5 |
| Síðan kveikti hann í blysunum og sleppti því næst refunum inn á akra Filistea og brenndi þannig bæði kornknippi, óslegið korn, víngarða og olíugarða. |
| 6 |
| Þá sögðu Filistear: „Hver hefur gert þetta?“ Og menn svöruðu: „Samson, tengdasonur mannsins frá Timna, því að hann hefur tekið frá honum konuna og gift hana brúðarsveini hans.“ Þá fóru Filistear til hans og brenndu hana inni og föður hennar. |
| 7 |
| En Samson sagði við þá: „Fyrst þið farið svona að mun ég ekki hætta fyrr en ég hef hefnt mín á ykkur að fullu.“ |
| 8 |
| Síðan barði hann svo óþyrmilega á þeim að sundur gengu læri og leggir. Og hann fór þaðan og settist að í hellinum í Etamskletti. |
| 9 |
| Þá fóru Filistear upp eftir, settu herbúðir sínar í Júda og dreifðu sér um Lekí. |
| 10 |
| Júdamenn sögðu: „Hví hafið þið snúist gegn okkur?“ En þeir svöruðu: „Við erum hingað komnir til þess að binda Samson svo að við getum farið með hann eins og hann hefur farið með okkur.“ |
| 11 |
| Þá fóru þrjú þúsund manns frá Júda niður til Etamskletts og sögðu við Samson: „Veistu ekki að Filistear drottna yfir okkur? Hvers vegna hefur þú gert okkur þetta?“ Hann svaraði þeim: „Á sama hátt og þeir léku mig, þannig hef ég leikið þá.“ |
| 12 |
| Þeir sögðu við hann: „Við erum komnir hingað til að binda þig svo að við getum framselt þig í hendur Filistea.“ Þá sagði Samson við þá: „Vinnið mér eið að því að þið munið ekki drepa mig sjálfir.“ |
| 13 |
| Þeir svöruðu honum: „Við munum aðeins binda þig og láta þig í hendur þeirra en við munum ekki drepa þig.“ Þeir bundu hann með tveimur nýjum reipum og fóru með hann burt frá klettinum. |
| 14 |
| Þegar Samson kom til Lekí komu Filistear með miklu ópi á móti honum. Þá kom andi Drottins yfir hann og urðu þá reipin, sem voru um armleggi hans, sem sviðnir þræðir og fjötrarnir hrukku af höndum hans. |
| 15 |
| Hann fann nýjan asnakjálka, rétti út höndina og tók hann og laust með honum þúsund manns. |
| 16 |
| Þá sagði Samson: Með asnakjálka setti ég hrauk á hrauk ofan, með asnakjálka hef ég banað þúsund manns. |
| 17 |
| Að svo mæltu varpaði hann kjálkanum úr hendi sér og var þessi staður upp frá því nefndur Ramat Lekí. |
| 18 |
| En Samson var mjög þyrstur og hrópaði því til Drottins og mælti: „Þú hefur veitt þennan mikla sigur fyrir hönd þjóns þíns. Á ég nú að deyja úr þorsta og falla í hendur óumskorinna manna?“ |
| 19 |
| Þá klauf Guð holuna sem var í Lekí svo að vatn spratt fram úr henni. Þegar hann hafði drukkið kom andi hans aftur og hann lifnaði við. Þess vegna er hún nefnd En hakkóre í Lekí fram á þennan dag. |
| 20 |
| En Samson var dómari í Ísrael tuttugu ár á dögum Filistea. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/judges/015.mp3
21
15