Í þá daga var enginn konungur í Ísrael og í þá daga voru niðjar Dans enn að leita sér að arfleifð til búsetu því að þeim hafði ekki enn hlotnast nein arfleifð meðal ættkvísla Ísraels.
Niðjar Dans sendu þá fimm hrausta menn af ætt sinni og úr sínum hópi frá Sorea og Estaól til þess að kanna landið og rannsaka það og sögðu við þá: „Farið og rannsakið landið.“ Og þeir komu upp í Efraímsfjöll, til húss Míka, og voru þar um nætursakir.
Þegar þeir voru staddir hjá húsi Míka þekktu þeir unga Levítann á málfari hans og spurðu hann: „Hver hefur flutt þig hingað? Hvað hefst þú hér að og hvernig er vist þín hér?“
Síðan fóru mennirnir fimm leiðar sinnar og komu til Laís og sáu þeir að fólkið, sem þar bjó, var áhyggjulaust að hætti Sídoninga, öruggt og óhult, að ekkert yfirvald var mönnum til ama þar í landi og að þeir voru einnig langt frá Sídoningum og höfðu engin samskipti við neinn.
Þeir svöruðu: „Komið, við skulum halda gegn þeim því að við höfum séð landið og það er mjög gott. Og þið hafist ekki að. Frestið því ekki að leggja af stað í þessa ferð til þess að taka landið til eignar.
Þegar þið komið þangað munuð þið hitta fyrir ugglaust fólk og landið er víðáttumikið. Guð hefur fengið ykkur það í hendur, land þar sem ekki skortir neitt það sem til er á jörðinni.“
Héldu þeir norður eftir og settu upp herbúðir sínar í Kirjat Jearím í Júda. Vegna þess er sá staður kallaður Herbúðir Dans fram á þennan dag og er hann fyrir vestan Kirjat Jearím.
Þá tóku mennirnir fimm til máls, þeir sem farið höfðu til Laís til þess að kanna landið, og sögðu við félaga sína: „Vitið þið að í þessum húsum er hökullíkneski, húsgoð, skurðlíkneski og steypt líkneski? Hyggið nú að hvað þið eigið að gera.“
en mennirnir fimm, sem farið höfðu að kanna landið, fóru þangað upp eftir, tóku skurðlíkneskið, hökullíkneskið, húsgoðin og steypta líkneskið. En presturinn stóð fyrir utan hliðið ásamt mönnunum sex hundruð, vopnbúnum.
Þegar þeir voru komnir inn í hús Míka tóku þeir skurðlíkneskið, hökullíkneskið, húsgoðin og steypta líkneskið. En presturinn sagði við þá: „Hvað eruð þið að gera?“
Þeir svöruðu honum: „Þegi þú. Leggðu hönd þína á munn þér, komdu með okkur og vertu okkur faðir og prestur. Er þér betra að vera heimilisprestur eins manns en að vera prestur hjá ættkvísl og kynþætti í Ísrael?“
Hann svaraði: „Þið hafið tekið guðina sem ég hafði gert mér og prestinn og eruð farnir burt. Hvað á ég þá eftir? Hvernig getið þið þá spurt mig: Hvað er að hjá þér?“
Þá sögðu niðjar Dans við hann: „Láttu ekki orð þín heyrast hér, annars kynnu skapillir menn að ráðast á ykkur og þú yrðir valdur að því að bæði þú og ætt þín týnduð lífi.“
Þeir tóku það sem Míka hafði búið til, svo og prestinn sem hann hafði haft, og réðust á Laís, ugglausa þjóð og óvara um sig, felldu hana með sverði en lögðu eld í borgina.
Þar var enginn sem kæmi þeim til hjálpar því að borgin var langt frá Sídon og þeir áttu ekki samskipti við nokkurn mann. Var borgin í dalnum sem er hjá Bet-Rehób. Síðan endurreistu þeir borgina og settust þar að.
Niðjar Dans reistu skurðgoðið handa sér og Jónatan Gersómsson, Manassesonar, og synir hans voru prestar hjá ættkvísl Dansniðja allt til þess er fólkið var herleitt úr landinu.