Drottinn sagði við Samúel: „Hversu lengi ætlarðu að vera sorgmæddur vegna Sáls? Ég hef hafnað honum sem konungi yfir Ísrael. Fylltu horn þitt af olíu og haltu af stað. Ég sendi þig til Ísaí frá Betlehem því að ég hef valið mér einn af sonum hans til að verða konungur.“
Samúel svaraði: „Hvernig get ég farið þangað? Sál drepur mig ef hann fréttir þetta.“ Þá sagði Drottinn: „Taktu með þér kvígu og segðu: Ég er kominn til að færa Drottni fórn.
Hann svaraði: „Já, ég er kominn til að færa Drottni fórn. Helgið ykkur og komið með mér til fórnarveislunnar.“ Síðan helgaði hann Ísaí og syni hans og bauð þeim til fórnarveislunnar.
En Drottinn sagði við Samúel: „Horfðu ekki á hæð hans og glæsileik því að ég hef hafnað honum. Guð lítur ekki á það sem maðurinn lítur á. Maðurinn sér hið ytra en Drottinn horfir á hjartað.“
Því næst spurði Samúel Ísaí: „Eru þetta allir synir þínir?“ Hann svaraði: „Þann yngsta vantar enn því að hann situr yfir fénu.“ Þá sagði Samúel við Ísaí: „Sendu einhvern eftir honum. Við setjumst ekki til borðs fyrr en hann er kominn.“
Samúel tók þá olíuhornið og smurði hann að bræðrum hans viðstöddum. Andi Drottins kom yfir Davíð frá þessum degi. En Samúel hélt af stað og fór til Rama.
Herra okkar þarf ekki annað en nefna það, þá skulu þjónar þínir, sem bíða frammi fyrir þér, leita að einhverjum sem kann að leika á hörpu. Hann getur leikið á hljóðfærið og þá líður þér betur þegar illi andinn frá Guði kemur yfir þig.“
Þá svaraði einn þjónanna og sagði: „Ég þekki son Ísaí frá Betlehem sem kann að leika á hljóðfæri. Auk þess er hann hraustmenni og góður hermaður. Hann er vel máli farinn og vel vaxinn og Drottinn er með honum.“